Ég tel að rætur fordóma og rasisma megi rekja til vankunnáttu og skorti á menntun og fræðslu á ólíkum menningaheimum og upprunum annara manna.
Þessi vankunnátta ýtir oftar en ekki undir ótta fólks, því það hræðist það sem það þekkir ekki. Ótti getur svo þróast út í reiði,gremju, kvíða og forvitni. Hræðsla og ótti geta ýtt undir hegðun sem einstaklingur myndi annars undir eðlilegum kringumstæðum aldrei láta detta sér til hugar.
Margir hafa heyrt sögusagnir af öðrum sem hafa átt samskipti við manneskju af ólíkum uppruna, eða hafa sjálfir reynsluna af því og hafa séð hvernig venjur annarra þjóða skarast oft á við okkar eigin. Oft vill folk segja að með þessum sögusögnum eða upplifunum á einstaka manneskum, þá sé þar með sagt að það þekki hreinlega fólkið eins og það leggi sig.
Ég hef hitt hörkuduglegt, heiðarlegt, kostgæfið og góðhjartað folk sem er svart, hvítt, suður- amerískt, asískt eða indjánar. Samt sem áður hef ég einnig hitt slæmt fólk með ljóta hugsun sem hefur sama uppruna og ofanaðtaldir. Martin Luther King Jr. mælti viturlega þegar hann hvatti mannkynið til þess að dæma menn ekki útfrá hörundslit, en frekar útfrá skapgerðareinkennum þeirra.
Þessa skilgreingunu er einnig hægt að notast við þegar kemur að því að skilgreina önnur einkenni sem því miður eiga það til að aðskilja okkur sem manneskjur, þ.e.a.s. trúarbrögð, kynferði, félagslega stöðu o.sv. frv.
Ef við tökum tæknivæðingu 21. aldarinnar með inn í myndina þá sjáum við að það er nákvæmlega enginn afsökun fyrir því að þekkja ekki menningalega sögu og hefðir nágrannaþjóða sinna. Þegar ég segi nágrannaþjóðir þá meina ég manninn frá Kazakhstan, konuna frá Eistlandi eða barnið frá Uganda. Með því að ýta á nokkra takka, geta upplýsingarnar komið fyrir augu okkar á aðeins nokkrum sekúndum, þegar við notumst við kraftmiklu tækninna, betur þekkt sem veraldrarvefinn.
Mörg okkar kunna að meta, elska eða eru jafnvel háð veraldrarvefnum. Ef þú finnur einhverntíma fyrir ögn af ótta (reiði, mótþróa) gagnvart einhverjum sem er "öðruvísi", minnkaðu þa notkunina á myspace, youtube eða MSN í nokkrar mínútur og þú getur haft upplýsingar um þessa manneskju frá t.d. Uruguay, Tælandi eða Danmörku, fyrir framan þig á tölvuskjánum á örfáum mínútum. Næst þegar þú sérð manneskju sem er "öðruvísi" gangandi á götunni skaltu gefa þér nokkrar mínútur til þess að spjalla við hana. Þú munt þá gera þér grein fyrir því að það eru bæði gott og slæmt í öllum, allt eftir því hvað við teljum kosti eða galla.
"þýðandi Supriya Sunneva"