Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Blóðug slagsmál skóladrengja

02. mars 2009

 

Fanney Halldórsdóttir skólastjóri Grunnskóla Sandgerðis segir of mikið gert úr slagsmálum fjórtán ára drengja í grunnskólanum þar sem einn slasaðist illa, tennur losnuðu og hann missti tímabundið heyrn. Ekki sé vitað nákvæmlega um áverka drengsins eða tildrög slagsmálanna.

 

Drengjunum hefur verið vísað úr skóla meðan málið er til meðferðar en það er á borði skólayfirvalda og barnaverndarnefndar.

 

Strákurinn sem slasaðist er pólskur en skólastjórinn segir að ekki sé grunur um það að drengurinn verði fyrir einelti vegna þjóðernis eða annars.

 

Svanborg Júlíusdóttir 15 ára nemandi segist hafa verið inni í nemendaráðsherberginu þegar hún heyrði öskur og kallað á hjálp. Hún hafi séð einn nemanda halda þeim sem slasaðist föstum meðan annar hafi barið hann. Þó nokkur hópur nemenda hafi horft á án þess að aðhafast. Strákunum lenti saman eftir að sá sem fyrir árásinni varð var kallaður polli en hann er af pólsku bergi brotinn.

 

Annar drengjanna sem höfðu sig mest í frammi er íþróttamaður Sandgerðisbæjar en hann æfir ólympíska hnefaleika hjá hnefaleikafélagi Reykjaness og hefur unnið til verðlauna fyrir góða frammistöðu. Sjá MBL sjónvarp.

 

 



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/03/02/blodug_slagsmal_skoladrengja/?ref=fphelst)

Húðflúraði hakakross á barn

13. jan 2009

Lögreglan á Vestfjörðum gerði húðflúrtæki mannsins upptæk.Húðflúrunartæki karlmanns á þrítugsaldri voru gerð upptæk eftir að upp komst að hann hefði húðflúrað börn undir lögaldri. Meðal annars húðflúraði maðurinn hakakross á eitt barnanna. Þetta kemur fram á vef Bæjarins besta.

 

Lögreglunni á Vestfjörðum barst ábending um málið og gerði tæki mannsins umsvifalaust upptæk. Maðurinn húðflúraði ísfirsk börn undir lögaldri og án samþykkis foreldra þeirra. Mörg hver eru húðflúrin á áberandi stöðum, t.d. á fingrum. Samkvæmt frétt BB eru foreldrar barnanna slegnir enda getur reynst afar kostnaðarsamt að fjarlægja húðflúr.

 


Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/13/hudfluradi_hakakross_a_barn/)

Atvinnuleysi 4,8% í desember

13. jan 2009

Atvinnuleysi í desember mældist 4,8%.Skráð atvinnuleysi í desember 2008 var 4,8% eða að meðaltali 7902 manns og jókst atvinnuleysi um 45% að meðaltali frá nóvember samkvæmt tölum, sem Vinnumálastofnun birti í dag. Hefur  atvinnuleysi ekki verið jafn mikið frá því í janúar árið 1997.

 

Á sama tíma á árinu 2007 var atvinnuleysi 0,8%, eða 1357 manns. Vinnumálastofnun segir, líklegt  að atvinnuleysið í janúar 2009 muni aukast verulega og verða á bilinu 6,4% ‐ 6,9%.

 

Atvinnuleysi í desember var mest á Suðurnesjum, 9,7% en minnst á Vestfjörðum, 1%. Atvinnuleysi jókst um 46% á höfuðborgarsvæðinu og um 44% á landsbyggðinni. Atvinnuleysi jókst mun meira meðal karla eða um 56% en um 29% meðal kvenna. Ástæða þess er m.a. meiri samdráttur í greinum sem karlar starfa í t.d. í byggingariðnaði.

Þeir sem verið hafa á skrá lengur en 6 mánuði voru 700 í lok desember en 610 í lok nóvember. Alls höfðu 255 verið atvinnulausir lengur en eitt ár í desember sem er svipað og í lok nóvember. Vinnumálastofnun segir, að þegar atvinnuleysi aukist eins mikið og nú sé mesta aukningin meðal þeirra sem hafi verið atvinnulausir í nokkrar vikur og mánuði.

Atvinnuleysi ungs fólks hefur aukist meira en þeirra eldri og hefur 16‐24 ára atvinnulausum fjölgað úr 1.408 í lok nóvember í 2.069 í lok desember og eru þeir um 23% allra atvinnulausra í desember.

 

Skýrsla Vinnumálastofnunar

 

 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/13/atvinnuleysi_4_8_prosent_i_desember/)

3.500 fyrirtæki í þrot?

09. jan 2009

Tæplega 3.500 fyrirtæki stefna í þrot innan tólf mánaða sé miðað við núverandi stöðu. Það sýna útreikningar fyrirtækisins Creditinfo á Íslandi. „Þegar ég segi þrot er ég að tala um að þau verði gjaldþrota eða gert verði í þeim árangurslaust fjárnám,“ segir Rakel Sveinsdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins.

 

Hún segir fyrirtækin flest á höfuðborgarsvæðinu, þau séu í öllum atvinnugreinum, lítil sem stór og í fullri starfsemi. Mest áberandi séu byggingarfyrirtæki og verslunar- og þjónustufyrirtæki. „Ef við berum þessa tölu saman við árin á undan er þetta mikil aukning frá árinu 2008 og 200 prósenta aukning frá árinu 2007.“ Fyrirtækin séu ekki í hópi með þeim sem séu í alvarlegum vanskilum, heldur við gjaldþrot verði ekki gripið til róttækra aðgerða.

 

Um 30 þúsund fyrirtæki eru í landinu. „Hafa þarf í huga að inni í þeirri tölu eru allar fyrirtækjakennitölur, hvort sem þær heyra eignarhaldsfélögum til eða svokölluðum skúffufyrirtækjum. Eflaust á það síðarnefnda við um einhver þessara nær 3.500 fyrirtækja en upp til hópa eru þetta ekki þau,“ leggur Rakel áherslu á. Creditinfo á Íslandi rannsakar nú hversu mörg þessara þrjátíu þúsund fyrirtækja eru virk.

 

Útreikningana lagði Rakel fram á fundi sjálfstæðismanna sem auðlindahópur Evrópunefndar Sjálfstæðisflokksins stóð fyrir í Valhöll í gær.

 

Nánar í Morgunblaðinu. Smelltu hér til að gerast áskrifandi.



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/09/3_500_fyrirtaeki_i_throt/)

Hópslagsmál í Lönguhlíð

07. jan 2009

Lögreglunni í Reykjavík tókst að skakka leikinn þegar tveimur hópum  með barefli lenti saman í Lönguhlíð í kvöld. Samkvæmt tilkynningunni sem lögreglunni barst fyrir um hálfri klukkustund var um útlendinga að ræða.

 


Enginn slasaðist í slagsmálunum, að því er lögreglan greinir frá. Hún segir að rætt hafi verið við slagsmálahundana á staðnum og þeir síðan haldið sína leið.

 

 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2009/01/07/hopslagsmal_i_longuhlid/)

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>