Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

4.400 sagt upp í hópuppsögnum

05. nóv 2008

Tæplega þrjú þúsund manns var sagt upp í hópuppsögnum í októberAlls hefur yfir 4.400 manns verið sagt upp á árinu 2008 meðhópuppsögnum. Stærstur hluti uppsagnanna barst í lok október eða um67%, eða um 2950 manns frá 64 fyrirtækjum. Fram að því höfðu borist frá0 til 4 tilkynningar í hverjum mánuði.

 

 Um 46% tilkynninganna voruvegna starfsmanna í mannvirkjagerð. Uppsagnir í fjármálastarfsemi, þarsem uppsagnir Landsbanka, Glitnis og Kaupþings vega þyngst, eru um 20%af tilkynningunum. Tæp 14% uppsagnanna koma úr verslunargeiranum og um11% úr iðnaði, í flestum tilvikum tengdur mannvirkjagerð. Um 4%uppsagna er í sérfræðistarfsemi og útgáfustarfsemi og tæp 4%uppsagnanna eru úr flutningastarfsemi þar sem póstdreifing vegurþyngst. Loks voru 1% uppsagna úr ýmiskonar þjónustu, samkvæmt upplýsingum á vef Vinnumálastofnunar.

 

Um 93% uppsagnanna eru vegna starfsfólks á höfuðborgarsvæðinu en aðraruppsagnir dreifast á Suðurnes, Vesturland Norðurland eystra ogSuðurland.

 

Heildarfjöldi starfsmanna þeirra fyrirtækja sem tilkynntu uppsagnir ertæplega 11.000 og því eru þessi fyrirtæki sem um ræðir að segja upp um28% starfsmanna sinna að jafnaði.

 

Mjög misjafnt er þó milliatvinnugreina hve hátt hlutfallið er. Þannig eru fyrirtæki ímannvirkjagerð að jafnaði að segja upp ríflega 42% sinna starfsmanna oger dreifingin allt frá 15% upp í 100%. Hlutfallið er svipað íflutningastarfsemi eða rúm 40%. Í iðnaði, sérfræðilegri starfsemi ogýmissi þjónustu er hlutfallið nálægt 35%, 20% í verslun og um 16% ífjármálastarfsemi.

 

Uppsagnirnar koma til framkvæmda allt upp í 6 mánuði. Upplýsingar umhvenær nákvæmlega einstakar uppsagnir koma til framkvæmda eru fremuróljósar, en þó má segja að á tímabilinu 1-3 mánuðir sé algengast, nemaí fjármálastarfsemi þar sem um er að ræða tímabil sem nær yfir 3-6mánuði. Flestar þessara uppsagna koma til framkvæmda um næstumánaðarmót, og svo um áramót og um mánaðarmótin jan./feb. 2009.

 

Ástæður uppsagna eru nánast alltaf verkefnaskortur, fjárhagserfiðleikarog óvissan framundan. Margir eru því að segja upp til að búa sig undirerfiða stöðu eftir 2-3 mánuði og vonast til að geta endurráðiðstarfsfólk að einhverju marki áður en til starfsloka þeirra kemur efverkefnastaða gefur tilefni til.

 

 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/11/05/4_400_sagt_upp_i_hopuppsognum/)