27. júlí 2007
Síðdegis í gær var tilkynnt um þjófnað á gleraugnaumgjörðum í Optical Studio við Hafnargötu. Munu tveir útlendingar hafa verið þar á ferð að sögn vitna. Þá kom síðar í ljós að vörum hafði verið stolið úr íþróttavöruversluninni K-Sport. Er grunur á að um sömu aðila sé að ræða og voru á ferðinni í gleraugnaversluninni.
Þá hafði lögreglan á Suðurnesjum afskipti af fjórum útlendingum í gær vegna umferðarlagabrots. Þeir gátu ekki framvísað neinum gildum persónuskilríkjum og voru því færðir á lögreglustöðina til að hægt væri að athuga hvort þeir væru með lögmæta dvöl hér á landi og reyndist svo vera. Samkvæmt lögum ber útlendingum að hafa ávallt meðferðis vegabréf eða annnað gilt kennivottorð.
26. júlí 2007
Vátryggingarfélag Íslands hefur gefið út bækling fyrir útlenda ökumenn á Íslandi til að stuðla gegn vaxandi hrað- og ölvunarakstri í þeirra hópi. Um 20 prósent þeirra sem kærðir vorur fyrir ölvunarakstur á fyrri hluta þessa árs eru erlendir ríkisborgarar. Bæklingurinn kemur út á fimm tungumálum.
Í tilkynningu frá Vátryggingafélaginu kemur ennfremur fram að 6 prósent þeirra sem kærðir voru fyrir hraðakstur á fyrri hluta þessa árs séu erlendir ríkisborgarar. Er vonast til þess að með bæklinginum fái útlendingar á Íslandi nauðsynlegar upplýsingar um umferðarlög á eigin tungumáli. Bæklingurinn er gefin út á spænsku, ensku, rússnesku, pólsku og íslensku.
15. júlí 2007
Þrír karlmenn réðust að manni fyrir utan veitingahús við Tryggvagötu í Reykjavík upp úr klukkan fimm í morgun og rotuðu hann. Lögregla kom á vettvang og náði að handtaka tvo árásarmannanna, en sá rotaði var fluttur á Slysadeild Landsspítalans, þar sem hann komst til meðvitundar og jafnaði sig. Hann mun ekki vera alvarlega meiddur.
Árásarmennirnir eru útlendingar, nýlega komnir til landsins og sennilega í atvinnuleit. Þeir hafa ekki fengið íslenska kennitölu, geta ekki vísað á dvalarstað eða neinn tengilið hér á landi og eru þeir enn í vörslu lögreglunnar.
11. júlí 2007
Útlendingar sem flytja hingað til lands þurfa sumir að fara á milli sjö stofnana til að fá öll tilskilin leyfi til að setjast hér að. Alþjóðahúsið vill miðstöð fyrir útlendinga þar sem hægt er að útvega þeim öll leyfi og pappíra á einum stað. Kona frá Sri Lanka sem býr hér á landi segir kerfið flóknara nú en fyrir 11 árum.
Þegar útlendingar flytja til landsins tekur við fremur flókið ferli. Fólk utan EES svæðisins þarf að fara á milli sjö stofnanna í borginni til að fá öll leyfi og pappíra en EES borgara þurfa að koma við á fimm stofnunum. Barbara Kristvinsson ráðgjafi hjá Alþjóðahúsinu segir að erfitt geti verið fyrir fólk að rata út um allan bæ og það geti verið tímafrekt að afla allra pappíra og leyfa.
Útlendingar þurfa að fara til útlendingastofnunnar til að fá dvalarleyfi og vinnumálastofnunar til að fá atvinnuleyfi. Þá þurfa þeir kennitölu og skattkort hjá Þjóðskrá og Ríkiskattstjóra. Ef öll leyfi eiga að vera í lagi þarf viðkomandi að fara í lungna- og berklaskoðun og fá læknisvottorð hjá heilsugæslu. Að því loknu þarf viðkomandi að fara til lögreglu og fá stimpil í vegabréfið. Þegar því er lokið þarf að útvega heilsutryggingu hjá Tryggingastofnun eða leggja inn E-104 eyðublað sem gildir á EES svæðinu. EES borgarar þurfa hins vegar ekki atvinnuleyfi frá Vinnumálastofnun og eru undanskildir læknisskoðun.
Renuka Perera kemur frá Sri Lanka og hefur búið á ÍSlandi í 11 ár. Hún segir kerfið flóknara nú en þegar hún kom til landsins 1996. Útlendingar í dag þurfi að fara á alltof marga staði.
Sasha Rabieh er Írani sem búið hefur í Þýskalandi undanfarin ár og starfar hér á landi hjá Matís sem efnafræðingur. Hann vinnur nú að því að fá konuna sína til landsins og segir kerfið vera mun flóknara en í Þýskalandi. Óþægilegt sé að þurfa fara til lögreglunnar til að fá einn stimpil í vegabréfið.
Alþjóðahúsið vill einfalda kerfið með því að koma á fót miðstöð sem hefði undir höndum alla þjónustu fyrir innflytjendur. Einar Skúlason framkvæmdastjóri Alþjóðahússins segist hafa mikinn áhuga á því að Alþjóðahúsið verði að slíkri miðstöð.