Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Fræðsla um réttindi samkynhneigðra á Íslandi

29. sept 2007

 

Jóhanna Sigurðardóttir félagsmálaráðherra og Frosti Jónsson formaður Samtakanna 78 undirrituðu í dag samning um að koma að gerð fræðslubæklings um réttindi samkynhneigðra á Íslandi fyrir útlendinga sem eru búsettir hér á landi. Félagsmálaráðuneytið og Samtökin veita tæpum tveimur milljónum króna til verkefnisins. Alþjóðahúsið kemur einnig að gerð bæklingsins og verður hann þýddur á fjögur tungumál; pólsku, ensku, litháísku og tælensku. Formaður Samtakanna 78 segir að ekki hafi náðst nógu vel til samkynhneigðra útlendinga sem búi á Íslandi og bæta þurfi úr því. Nú búa um 20 þúsund útlendingar á Íslandi og má ætla að eitt til tvö þúsund þeirra séu

Útlendingar vita ekki að þeir geta kvartað

24. sept 2007

Guðrún R. Stefánsdóttir - grs@dv.is



Það hefur borið á því að undanförnu að erlendir verkamenn hér á landi búi í lélegu húsnæði sem er heilsuspillandi og hættulegt. Nú í nótt kviknaði í bakhúsi við Laugavegi í Reykjavík þar sem líf 30 erlendra verkamanna var í hættu og það er óvíst hvernig ástatt hefur verið með það húsnæði. 

,,Ef leiguhúsnæði er metið heilsuspillandi er útleiga óheimili þar til úr hefur verið bætt. Oftast er það þannig að þeir sem búa í húsnæði sem þá grunar að sé heilsuspillandi hafa samband við okkur og þá getum við komið og metið hvort um heilsuspillandi húsnæði sé að ræða," segir Rósa Magnúsdóttur deildarstjóri Hollustuhátta hjá Umhverfissviði Reykjavíkurborgar um þessi mál.

Rósa segir að útlendingar viti oft ekki af þessari þjónustu og láti því ekki í sér heyra, eða einfaldlega þori ekki að láta í sér heyra.

,,Til er reglugerð um hollustuhætti hvað varðar húsnæði en þar er ekkert í þeirri reglugerð sem segir til um rými á hvern einstakling eða aðbúnað og við söknum þess að svo skuli ekki vera," segir Rósa. 

Heilbrigðisnefnd getur bannað afnot af leiguhúsnæði ef það stenst ekki kröfur. Hún bætir því við að ekki megi leigja húsnæði út til íbúðar sem er ekki samþykkt af byggingarfulltrúa sem íbúðarhúsnæði.

Hámenntaðir útlendingar á Njálsborg

21. sept 2007



Á leikskólanum Njálsborg í Reykjavík eru fimm starfsmenn af þrettán af öðru þjóðerni en íslensku. Blaðamaður dv.is ræddi við Eddu Margréti Jónsdóttur leikskólastjóra um reynslu hennar af þessu starfsfólki. ,,Ég hef mjög góða reynslu af mínu erlenda starfsfólki sem er samviskusamt fólk og vel menntað, t.d. er hér háskólakennari í líffræði, grunnskólakennari, ferðamálfræðingur svo eitthvað sé nefnt".

Edda Margrét segir erlent starfsfólk leikskólans allt tala ágæta íslensku og líka ensku. Markmið leikskólans hefur verið að hafa einn erlendan starfsmann á hverri deild.

Styrkleiki þessara starfsmanna er mikill að sögn Eddu Margrétar. ,,Hér er mikið af erlendum börnum, eða 20 af 50 börnum leikskólans, og þá kemur sér vel að hafa erlenda starfsmenn,  líka t.d. kom til okkar portúgölsk fjölskylda sem talaði ekki íslensku eða ensku þá kom sér vel að hafa manneskju hér í húsinu sem talar spænsku".

Edda Margrét segir að auðvitað geti komið upp málörðugleikar og þá sé bara að taka á því. ,,Einnig hefur fólk misjafnan menningarlegan bakgrunn, það sem þykir sjálfsagt á Íslandi þykir ekkert endilega sjálfsagt hjá öðrum", segir Edda Margrét og bætir því við að fyrst og fremst gefi erlenda starfsfólkið leikskólanum skemmtilegan blæ og auki víðsýni annarra starfsmanna.

Bolvíkingur leiðir anti-rasista á Íslandi

20. sept 2007

Dane Magnússon er formaður Félags anti-rasista sem stendur fyrir tónleikum á Gauki á Stöng í kvöld, en hann ólst upp í Bolungarvík. Mynd: visir.is.

Dane Magnússon úr Bolungarvík er formaður Félags anti-rasista á Íslandi sem fagnar eins árs afmælis um þessar mundir. Í tilefni af þeim tímamótum verða haldnir tónleikar á Gauknum í kvöld undir yfirskriftinni Ísland án fordóma og þar er ætlunin að nýta tækifærið og kynna félagið fyrir almenningi. Tilgangur þessa félags er fyrst og fremst að berjast gegn kynþáttahatri og eru tónleikarnir liður í því að beina kastljósinu að veruleika fólks með erlendan bakgrunn hér á landi en þetta fólk býr oft yfir reynslu af ofbeldi og svívirðingum. Meginmarkmiðið með tónleikunum er að auka skilning og umburðarlyndi.

Fjölmargir koma fram á tónleikunum í kvöld og mun m.a. bolvíska hljómsveitin Myst spila ásamt fleirum en einnig verður boðið upp á breakdans og afrískan trommuleik. Húsið opnar kl. 20 og miðaverð er 500 krónur. Allur ágóði rennur til Félags anti-rasista.

Frá þessu var greint á vikari.is.

thelma@bb.is

Segir fordóma hafa aukist eftir umræðu Frjálslyndra

17. sept 2007

Eitt hundrað manns hafa gengið til liðs við Félag anti-rasista á Íslandi en eitt ár er liðið frá því það var stofnað. „Fordómar eru eins og að vera með skemmda tönn í munninum. Ísland er mjög þróað land þegar kemur að flestum málum, en Íslendingar geta átt það til að vera til baka þegar kemur að þessum atriðum. Mér finnst kynþáttafordómar hafa færst í aukana síðustu ár. Þar er ég einkum að tala átökin milli þeirra sem eru með ólíkan húðlit, s.s. svartra og hvítra. Sérstaklega fann ég fyrir þeim í kjölfar umræðu Frjálslynda flokksins fyrir síðustu alþingiskosningar,“ segir Dane Magnússon, formaður félagsins.

Tveir skrá sig í samtökin í viku hverri

Einungis ár er liðið frá því að félagið var stofnað og hefur það vaxið hratt síðan. Nú eru alls tæplega 100 félagar í hópnum og segir Dane að þar sé um að ræða afar fjölbreyttan hóp, hvort sem er innfædda Íslendinga eða fólk af erlendum uppruna. Íslendingarnir eigi það þó yfirleitt sameiginlegt að hafa búið erlendis og hafa því reynslu af því að vera útlendingar í fjarlægu landi. Frá því að samtökin voru stofnuð hafa um tveir aðilar skráð sig í þau í viku hverri. Segir Dane forsvarsmenn þeirra nú leita að hentugu húsnæði sem rúmi starfsemina.

Á nk. fimmtudag heldur Félag anti-rasista upp á árs afmæli sitt á Gauki á stöng þar sem ýmsir tónlistarmenn munu spila, m.a. Jagúar, XXX Rottweiler og Myst. Tilgangur félagsins er að berjast á móti kynþáttahatri, en ýmsir meðlimir þess hafa reynslu af ofbeldi og svívirðingum hér á landi. Ásamt Dane, áttu fjórir aðrir veg og vanda að stofnun félagsins, þ.á.m. Jason Hyde, sem fæddist í Bandaríkjunum en hefur búið á Íslandi til fjölda ára.

„Þetta ræðst oft af þekkingarleysi og getur verið mjög mikil reiði í mörgu fólki. Margir láta hluti eins og veðrið, lánagreiðslur eða annað pirra sig og láta reiðina þá bitna á öðrum manneskjum. Þá er auðvelt að gera fólk af erlendum uppruna að blóraböggli. Við viljum auka fræðslu um þessi mál í skólum og veita því fólki sem kemur til Íslands stuðning og fræðslu um landið,“ segir Dane.

Finnst hann alltaf vera í minnihluta

Dane er fæddur á Jamaíku í Karíbahafi en flutti til Íslands ásamt móður sinni þegar hann var þrettán ára gamall. Bjó hann fyrst um sinn á Vestfjörðum en flutti síðan til Reykjavíkur árið 1996. Þrátt fyrir að hafa verið íslenskur ríkisborgarari í mörg ár, segist hann enn finna fyrir skringilegum augnagotum í átt til sín sem rekja megi til dökks húðlits síns. Hann segir ekki taka því sem það sé illa meint hjá fólki, en augnatillitin verði til þess að honum finnist hann sífellt vera í minnihluta.

Hópárás vegna húðlitar

Meðlimir í Félagi anti-rasista hittast gjarnan og fara yfir það sem er að gerast hverju sinni. Hann segir marga sem verði fyrir einhvers konar ofbeldi í garð sinn vegna húðlitar leita til vina og ættingja í stað lögreglunnar. Sem dæmi um ofbeldi vegna húðlitar nefnir Dane þegar ráðist var á tvo stráka af afrískum uppruna á bensínstöð fyrir nokkrum mánuðum. Voru þeir á leið í bíl sinn þegar átta drengir komu að þeim, lömdu þá og kölluðu illum nöfnum. Oftast eru það yngri karlmenn sem hafa frammí fordómum sínum sem koma einkum og sér í lagi fram á næturlífinu.

Dane hvetur alla til að mæta á Gauk á stöng á fimmtudag nk. og kynna sér starfsemi félagsins.


Róbert Hlynur Baldursson - roberthb@dv.is
 

1 2 >>