08. ágú 2008
Hæstiréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að tveir menn sæti gæsluvarðhaldi til 11. ágúst vegna gruns um að þeir hafi átt aðild að því þegar vegfaranda var veittur áverki með hnífi í miðborg Reykjavíkur í síðustu viku. Þriðji maðurinn hefur viðurkennt að hafa beitt hnífnum. Um er að ræða núverandi og fyrrverandi starfsmenn veitingastaðar í miðborginni.
Þriðji maðurinn hefur viðurkennt að hafa beitt hnífnum en mennirnir tveir voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna þess að þáttur þeirra í árásinni þykir ekki nægilega upplýstur.
Lögreglan var kölluð að Hverfisgötu í Reykjavík aðfaranótt föstudags en þar var maður með áverka undir herðablaði og á handlegg og sagði að eitthvert fólk hefði ráðist á sig. Reyndist maðurinn m.a. vera með stungusár á brjósti.
Á myndskeiði úr eftirlitsmyndavélum við sást hvar þrír karlmenn og ein stúlka gengu norður Ingólfsstrætið og beygðu fyrir hornið vestur Hverfisgötu. Skömmu síðar sést á myndskeiði úr eftirlitsmyndavél, sem snýr að Hverfisgötu, hvar einn úr hópnum er í átökum og virðist halda á hnífi.
Starfsmaður veitingastaðar á svæðinu bar kennsl á þá sem sáust á myndskeiðum en um var að ræða starfsmenn og fyrrverandi starfsmenn staðarins. Voru þrír karlmenn handteknir í kjölfarið.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/08/08/gaesluvardhald_vegna_hnifsstungu_stadfest/)
07. ágú 2008
Lögregla höfuðborgarsvæðisins leitar nú að tveimur erlendum mönnum sem taldið er að hafi ráðist á samlanda sinn og sært hann með tveim stungusárum á fótlegg. Árásin átti sér stað í húsi við Snorrabraut fyrr í dag.
Tveir menn hafa verið handteknir vegna málsins. Að sögn lögreglunnar barst þeim tilkynning um árásina um klukkan 13.30 í dag. Ekki liggur ljóst fyrir hver er ástæðan fyrir árásinni né hvernig þessir menn tengjast hvor öðrum. Samkvæmt heimildum Vísis mun vera um Pólverja að ræða.
Sá sem varð fyrir árásinni var fluttur á slysadeild en meiðsli hans eru ekki talin alvarleg.
Þeir tveir sem handteknir hafa verið voru á vettvangi er lögreglan kom að húsinu og hafa þeir stöðu sakborninga í málinu. Allir mennirnir voru undir áhrifum áfengis.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080907/FRETTIR01/789902844)
07. ágú 2008
Þrír menn eru í haldi lögreglu grunaðir um aðild að hnífsstungu aðfaranótt föstudagsins fyrir verslunarmannahelgi. Þá var ráðist á erlendan karlmann á mótum Hverfisgötu og Lækjargötu og hann stunginn djúpri stungu í bakið. Atburðurinn náðist á öryggismyndavél.
Tveir íslendingar voru í gær úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins og í gærkvöldi var þriðji maðurinn handtekinn grunaður um aðild. Enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvort farið verði fram á gæsluvarðhald yfir honum að sögn Friðriks Smára Björgvinssonar yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Friðrik Smári staðfestir einnig í samtali við Vísi að atburðurinn hafi náðst á öryggismyndavél sem staðsett er í grenndinni. Hann segir fórnarlambið hafa verið útskrifað af sjúkrahúsi en á tímabili var óttast um líf þess.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080807/FRETTIR01/659256583)
05. ágú 2008
Þeir palestínsku flóttamenn sem eru á leið hingað til lands eru niðjar Palestínumanna sem flúðu land sitt við stofnun Ísraelsríkis árið 1948 og settust að í Írak. Þau fengu hins vegar ekki ríkisfang í Írak og eiga þess vegna ekkert ríkisfang né landsvæði tið að hverfa til að sögn Lindu Björk Guðrúnardóttur sem sér um undirbúning að komu flóttamannanna til Akraness.
„Palestínunmönnum sem búa í Írak var úthlutað húsnæði í Baghdad á tímum Saddam Hussein og höfðu þeir það ágætt þegar hann var við völd. Þeir fengu þó hvorki ríkisfang né réttindi í Írak en liðu engan skort."
„Síðan þegar Saddam Hussein fellur er farið að ráðast að þessu fólki þar sem þau eru talin vera vinveitt Saddam Hussein þar sem hann studdi Palestínumenn gegn Ísrael. Þá eru þau hrakin af heimilum sínum þannig að þetta fólk í flóttamannabúðum hefur ekkert að hverfa til."segir Linda.
Að sögn Lindu koma Palestínumennirnir hingað til lands í byrjun september og er undirbúningur á fullu þessa dagana. Húsnæði er að öllum líkindum komið fyrir alla flóttamennina. Síðan var Rauði Krossinn á Akranesi með söfnun á húsgögnum og fötum fyrir þau sem gekk svo vel að loka þurfti söfnuninni viku á undan áætlun.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080805/FRETTIR01/299664114)
02. ágú 2008
Ríflega 4700 fleiri fluttu til landsins en frá því á fyrstu sex mánuðum ársins samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Nema aðfluttir umfram brottflutta á þessum tíma um einu og hálfu prósenti af íbúafjölda landsins. Um er að ræða umtalsverða fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra en þá nam fjölgunin um 2600 manns.
Áfram flyst fólk utan af landi og til höfuðborgarsvæðisins. Svokallaður flutningsjöfnuður reyndist jákvæður um 3500 manns á höfuðborgarsvæðinu og hann var einnig jákvæður fyrir alla aðra landshluta nema Austurland og Vestfirði. 150 fleiri fluttu frá Austfjörðum en til þeirra á fyrri helmingi ársins og 44 fleiri frá Vestfjörðum en til þeirra. Fækkunina á Austurlandi má að stærstum hluta rekja til brottflutnings erlendra starfsmanna frá Reyðarfirði þar sem álver Alcoa var reist, en þaðan fluttust 192 á fyrri helmingi ársins.
Eins og undanfarin ár fjölgar erlendum ríkisborgurum sem flytjast til Íslands og hafa þeir aldrei verið fleiri. Á fyrstu sex mánuðum ársins fluttu 4500 fleiri erlendir ríkisborgara til landsins en frá því en þeir foru tæplega þúsund í fyrra.
Þrátt fyrir mikinn aðflutning til landsins hefur orðið nokkur samdráttur á umfangi búferlaflutninga innanlands. Fyrstu sex mánuði ársins var heildarfjöldi skráðra flutninga innanlands 23.208 á móti 25.812 á sama tíma í fyrra.
Rétt er að hafa í huga að nokkur töf getur orðið á því að útlendingar sem fá dvalarleyfi séu skráðir í íbúaskrá og að sama skapi getur dregist að þeir einstaklingar sem flytjast af landi brott séu felldir úr íbúaskrá.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080902/FRETTIR01/275449307&SearchID=7333008148883)