Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Ungt barn lést í sjúkrabíl í þriðju ferð til læknis

02. ágú 2008

 Barn lést eftir að botnlangi þess sprakk en þá höfðu foreldrar þess farið með það tvívegis til læknis en í bæði skiptin voru þau send heim. Þegar barninu hrakaði kom nágranni fólksins að sem er sjúkraliði og hringdi á sjúkrabíl. Barnið dó á leið á sjúkrahúsið en banamein þess var blóðeitrun vegna sprungins botnlanga. Atvikið átti sér stað í síðstliðnum mánuði.

 

 

Málið í nánari skoðun

„Miðað við þær upplýsingar sem við höfum frá læknum Landspítala var hér um mjög óvenjulega sjúkdómsmynd að ræða og ekkert sem bendir til að aðstandendur eða læknar hefðu átt að bregðast öðruvísi við en gert var,“ segir Kristján Oddsson, yfirlæknir hjá landlæknisembættinu. „Þá virðist eftirfylgni við aðstandendur hafa verið góð en við eigum von á skýrslu frá Landspítalanum og munum þá skoða málið nánar,“ segir hann og ítrekar að hin óvenjulega sjúkdómsmynd hafi dulið hið alvarlega ástand með ofangreindum afleiðingum.

 

 

Gott aðgengi skiptir máli

„Sem betur fer er það mjög sjaldgæft að fólk deyi vegna afleiðinga sprungins botnlanga,“ segir Niels Christian Nielsen, lækningaforstjóri á Landspítalanum, og bætir við að gott aðgengi að heilbrigðisþjónustu skipti miklu máli.
Í hnotskurn
Barn lést í sjúkrabifreið í þriðju ferð sinni á sjúkrahús en í fyrri tvö skiptin var það sent heim. Afar fátítt er að fólk deyi af völdum botnlangakasts. "Foreldrarnir eru af pólskum uppruna með íslenskt ríkisfang og tala íslensku".

 

Nánar í 24 stundum. Smelltu hér ef þú fékkst ekki 24 stundir í dag.


Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/08/02/rong_greining_ungt_barn_lest_i_sjukrabil_i_thridju_/)

Hús ríkra og fátækra á Íslandi

01. ágú 2008

Bandaríski ljósmyndarinn Julia Staples starfar hér á landi þessa mánuðina, á sex mánaða styrk frá American-Scandinavian Foundation. Hún er að mynda verkefni sem hún segir fjalla um vaxandi mun á ríkum og fátækum á Íslandi.

 

„Ég hef verið að koma hingað síðustu árin og það vakti athygli mína hvað mikið var byggt af húsum hér. Það vakti forvitni mína að sjá þessi nýju hverfi rjúka upp í Reykjavík og nágrannasveitarfélögunum,“ segir Staples. „Ég las um síaukinn fjölda innflytjenda, fólk sem flytti hingað til að vinna, að þeir ríku yrðu sífellt ríkari og byggðu stærri hús, lifðu við sífellt meiri lúxus. Ég vildi kanna þetta í ljósmyndum og þessi nýju samfélög sem væru að rísa.“ Staples segist safna upplýsingum um þróun hverfa eins og Breiðholts, Lindahverfisins og Norðlingaholts.

 

„Ég skrái þessi svæði, hvað mér sýnist vera mikilvægt í þeim fyrir íbúana, eins og útsýni, stærð lóða og húsa, og helstu einkenni húsanna.

 

Í myndunum reyni ég að gefa tilfinningu fyrir þessum mun á ríkidæmi, sem mér finnst aukast hratt hér. Sumir eru farnir að fljúga milli landa á einkaþotum og byggja glæsihallir. Ég hef myndað íbúðarhús margra þeirra ríku; ég nota arkitektúr sem myndlíkingu fyrir fólkið, í stað þess að taka portrett.

 

Ég hef til dæmis ljósmyndað hús og fyrirtæki sem Jón Ásgeir Jóhannesson á, hann er einn af auðmönnunum og á svo margt sem er hluti af daglegu lífi almennings.“

 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/08/01/hus_rikra_og_fataekra_a_islandi/)

Segja Keníaher beita pyntingum

28. júlí 2008

Mannréttindahópar hvöttu í dagBretland og Bandaríkin til að hætta samvinnu við herinn í Kenía og sögðu aðBretland væri aðstoða við þjálfun hermanna sem nú eru ásakaðir um pyntingar ogmorð.

 

Samtökin Human Rights Watchsegja að hernaðarleg aðstoð ætti að hætta þar til sjálfstæð rannsókn á ásökununumhefur farið fram og þeim sem standa fyrir óhæfuverkunum refsað.

 

Bretland og Bandaríkin látamilljónir dala renna til Kenía og veita aðstoð við þjálfun kenískrahermanna.  Kenía er talin vera suðupotturmargra ofstækisfullra íslamskra hreyfinga.

 

Rannsóknarmaðurinn Ben Rawlencesem skrifaði skýrsluna sem birtist í dag sagði að breska þjóðin ætti að hafa áhyggjuraf því að peningar hennar færu í að þjálfa menn sem tengdust pyntingum, morðumog mannshvörfum.

 

Talsmaður breska sendiráðsins íKenía, Charley Williams, sagði að kæmi í ljós að ásakanirnar væru sannar mynduBretar ekki byrja að nýju þjálfun hermanna þar til Bretar væru ánægðir meðhvernig stjórnvöld í Kenía væru að leysa málið.

 

Herinn í Kenía neitar ásökunumum pyntingar og segir menn sína ekki þjálfaða í að pynta fólkið sem þeir eigaað vernda.

 

Human Rights Watch og aðrirmannréttindahópar segja að þeir hafi skráð hjá sér hundruðir dæma um pyntingarog mannshvörf af völdum hersins í héraðinu Mount Elgon.

 

Herinn var þar að fást við hópherskárra manna sem kallaður er Sabaot Land Defence Force.

 

Áður en herinn fór á svæðið ímars hafði hópurinn limlest og myrt hundruðir manna vegna landadeilna.

 

Öryggissveitir ríkisins fóruyfir svæðið og framkvæmdi fjöldahandtökur og eru þess dæmi að ellefu ára börnhafi verið handtekin. Sveitirnar hafa sjálfar viðurkennt að hafa handtekið að minnsta kosti fjögur þúsund karlmenn og drengi og flutt í sérstakar búðir þar sem þeir voru yfirheyrðir um meint tengsl við vígamannasvetina.

 

Yfirheyrslur þessar fólust að miklu leyti í pyntingum að sögn Human Rights Watch.

 

Sökum þessara fjöldahandtaka og vegna þess að vígamennirnir ræna karlmönnum og drengjum og þjálfa þá síðan er héraðið nær eingöngu byggt kvenfólki og stúlkum í dag.

 

Bretland hjálpaði við að þjálfanokkrar þessara sveita í viðbrögðum gegn vígamönnum.  Fjöldi fórnarlamba pyntinganna bar kennsl ásveitina sem Bretar þjálfuðu.

 

Williams staðfesti að breski herinn hefði þjálfað hlutasveitarinnar í landamæragæslu. Hún sagði þó að Bretar hefðu enga heimild til aðrannsaka ásakanir um pyntingar af hálfu öryggissveita stjórnvalda.

 

„Við erum að reyna að fá nánari upplýsingar fráyfirvöldum. Allir þeir sem brjóta lög eiga að þurfa að svara fyrir það,“ sagðitalsmaðurinn.

 

Átökin í Mount Elgon eiga sér djúpar rætur í illdeildum vegnaeignarréttar á landi. Vígamennirnir komu fyrst fram á sjónarsviðið 2006 og voruþví til staðar áður en hinir mannskæðu bardagar blossuðu upp vegna kosninganna ídesember síðast liðinn.

 

Skýrslan og meiri upplýsingar á heimasíðu Human Rights Watch.

 



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/erlent/2008/07/28/segja_keniaher_beita_pyntingum/)

Mál Ramses í höndum ráðuneytisins

25. júlí 2008

Katrín Theodórsdóttir, lögmaður, skilar inn kæru vegna brottvísunar Ramsesar.

 

Svör við athugasemdum Útlendingastofnunar vegna máls Paul Ramses eru nú hjá Dómsmálaráðuneyti. Lögmaður Ramses vonast eftir skjótri málsmeðferð.

 

Lögmaður Paul Ramses, Katrín Theodórsdóttir, segir að athugasemdir Útlendingastofnunar vegna kæru sinnar í máli Paul Ramses hafi borist sér síðastlinn föstudag. Þeim hafi hún svarað á miðvikudag og sent Dómsmálaráðuneytinu.

 

„Svo vonar maður bara að þetta verði tekið fyrir sem allra fyrst,“ segir Katrín.

 

„Ég trúi heldur ekki öðru að það verði gert, þetta er afar óþægilegt mál,“ sagði Katrín að lokum.

 

Keníamanninum Paul Ramses var vísað úr landi í byrjun mánaðarins. Það hefur verið kært. Kona Pauls og barn mega dveljast í landinu þar til úrskurðað hefur verið í máli hans. Hann dvelst nú í búðum fyrir hælisleitendur í Róm.

 

 

 



Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/25/mal_ramses_i_hondum_raduneytisins/)

Fjölmenningarverkefnið

25. júlí 2008

PDF Prenta Rafpóstur

Mánudaginn 5. maí fengu nemendur 4. bekkjar kynningu á verkefninu "Við öll" sem er kynning á fjölmenningu og forvörn gegn fordómum.  Dane Magnússon sem kemur frá Jamaica ræddi við krakkana og Styrmir Barkarson afhenti þeim tréliti að gjöf frá Sparisjóði Keflavíkur sem eru hörundslitir allra kynþátta.  Í leiðinni kynntu þeir teiknisamkeppni fyrir nemendum sem ber yfirskriftina "Fjölmenning" þar sem nemendur eiga að teikna myndir með sínum hugmyndum um fjölmenningu.  Myndirnar verða síðan til sýnis á Ljósanótt 2008.  Við þökkum Dane og Styrmi kærlega fyrir heimsóknina.  

 

  Image

Image

Image

Image

Image

Image

Image


http://www.njardvikurskoli.is/index.php?id=512&Itemid=337&option=com_content&task=view

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>