11. júlí 2008
Fullyrðingar Paul Ramses um að líf hans sé hættu verði honum gert að snúa aftur til Kenía eru ekki sannar að sögn ættingja Pauls sem búsettir eru á Íslandi. Þeir vilja engu að síður að hann fái hæli á Íslandi til að fjölskyldan geti sameinast.
Lydia Björnsson og Paul Ramses eru systkinabörn en Lydia hefur verið búsett hér á landi ásamt syni sínum Samúel í rúman áratug. Hér á landi býr einnig frændi Pauls - Robert Sewe.
Robert sagði í kvöldfréttum Stöðvar 2 að Paul frænda sinn hefði búið til þær sögur að hann væri í hættu í Kenýa til að fá hæli hér á landi.
Af hverju ætti hann að búa til slíka sögu?
"Ég veit það ekki. Þetta er bara eitthvað sem hann bjó til, kannski til að geta sótt um pólitískt hæli. Ég held hann ætti bara að sækja um venjulegt dvalarleyfi til að geta búið hér."
Lydia, frænka Paul, segir ástandið í Kenýa ekki jafn slæmt og Paul láti það líta út fyrir að vera.
"Ég á bróður, frænku og frænda þarna. Ég hringdi í bróðir Paul í gær eða í fyrradag og hann sagði allt vera í lagi."
Þau segja Paul hafa sýnt lítinn áhuga á samskiptum við ættingja sína hér á landi. Þau vonist samt til þess að hann fái lausn sinna mála.
"Ég vona innilega að hann verði sendur hingað því ég vil fá hann hingað ég vil að fjölskylda mín verði saman hér á Íslandi," sagði hún.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080711/FRETTIR01/842560233)
11. júlí 2008
Mikill meirihluti landsmanna telur að glæpum hafi fjölgað á Íslandi á síðustu fimm árum. Þetta kemur fram í nýrri könnun fréttastofu Stöðvar 2 sem sýnir jafnframt að flestir telja fjölgunina tengjast fíkniefnaneyslu og fjölgun útlendinga.
Könnunin var gerð dagana 3. - 9. júlí. Úrtakið var rúmlega ellefu hundruð manns á aldrinum 16-75 ára af landinu öllu. Liðlega helmingur svaraði.
Fólk var spurt hvort það teldi að glæpum hefði fjölgað, fækkað eða staðið í stað á síðustu fimm árum. Í ljós kom að ríflega áttatíu og eitt prósent töldu að glæpum hefði fjölgað, rúmlega sautján prósent að þeir hefðu staðið í stað en aðeins eitt og hálft prósent að þeim hefði fækkað. Fleiri konur en karlar sögðu að glæpum hefði fjölgað eða 87 prósent á móti tæplega 76 prósent karla.
Þegar spurt var hver fólk teldi að meginástæðan væri fyrir fjölgun glæpa kom í ljós að langflestir, eða yfir helmingur svarenda, töldu það vera vegna fíkniefnaneyslu eða aukinnar fíkniefnaneyslu eða 55,5 prósent.
Næst flestir nefndu fjölgun útlendinga sem meginástæðu fjölgunar glæpa eða tæp 36 prósent. Aðrar ástæður sem nefndar voru eru aga og virðingarleysi, ónóg löggæsla eða skortur á fjárveitingu til löggæslu og skipuleg glæpastarfsemi.
Þrátt fyrir að flestir telji glæpum hafa fjölgað á síðustu árum er það ekki í samræmi við tölur ríkislögreglustjóra. Í tölfræðiskýrslu embættisins sem sýnir fjölda afbrota á síðasta ári sést að hegingarlagabortum hefur fækkað á síðustu fimm árum. Þannig voru hegningarlagabrot árið 2007 svipuð og árið á undan. Nokkuð fleiri en árið 2005 og færri en árin 2003 og 2004. Rétt er þó að taka fram að tölurnar frá síðasta ári eru bráðabirgðatölur.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080711/FRETTIR01/247125876)
11. júlí 2008
Skráð atvinnuleysi í júní 2008 var 1,1% eða að meðaltali 1.842 manns, sem eru 103 fleiri en í maí síðastliðnum eða um 6% aukning. Atvinnuleysi var 1% á sama tíma í fyrra. Atvinnuleysi jókst á höfuðborgarsvæðinu um 18% en minnkaði á landsbyggðinni um 7%. Atvinnuleysi kvenna jókst meira en meðal karla á höfuðborgarsvæðinu en minnkaði meðal kvenna á landsbyggðinni, svo og meðal karla þar. Þetta kemur fram í tölum Vinnumálastofnunar.
Þar kemur fram að atvinnuleysi þeirra sem hafa verið á skrá í allt að 3 mánuði jókst milli mánaða, en alls höfðu 1.183 verið án vinnu í 3 mánuði í júní 2008 en 1.022 í maí. Hins vegar fækkaði þeim sem hafa verið á skrá lengur en 6 mánuði og voru 477 án vinnu í yfir 6 mánuði í júnílok en 506 í maílok.
Vinnumálastofnun segir að oft minnki atvinnuleysið milli júní og júlí. Í fyrra hafi atvinnuleysið minnkað um 3% milli þessara mánaða og hafi farið úr 1% í júní og í 0,9% í júlí. Atvinnulausum í lok júní hafi fjölgað frá lokum maí um 87 og um 295 frá júní 2007. Líklegt sé að atvinnuleysið muni aukast í júlí 2008 og verða á bilinu 1%-1,3%.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080711/FRETTIR01/651551367)
10. júlí 2008
Flóttamenn Mál Pauls Ramses var ekki kært til dómsmálaráðherra fyrir löngu síðan, þar sem lögmanni hans var ekki tilkynnt um úrskurð, um að hann yrði sendur úr landi, fyrr en kvöldið áður en hann fór, 3. júlí.
Þetta segir Katrín Theodórsdóttir, lögmaður hans, sem skilaði kæru til dómsmálaráðherra í gær.
Með fyrrgreindum vinnubrögðum hafi Útlendingastofnun „komið í veg fyrir að Paul gæti þá þegar kært ákvörðunina," segir hún.
Helga G. Halldórsdóttir, sviðsstjóri innanlandssviðs hjá Rauða krossi Íslands (RKÍ), sagði einnig í Fréttablaðinu á laugardag að illa hefði verið að máli Pauls staðið: „Við vissum ekki að hann ætti að fara úr landi þennan dag fyrr en [hann var handtekinn kvöldið áður]. Það hefði verið eðlilegt að gefa þeim tíma til að gera ráðstafanir."
Útlendingastofnun sendir beiðni til ríkislögreglustjóra þegar ákvörðun í máli útlendings skal birt. „Eftir það er þetta úr höndum stofnunarinnar," segir Ragnheiður Böðvarsdóttir, staðgengill forstjóra. Seinni beiðnin fór frá stofnuninni 3. júní.
Talsmaður ríkislögreglustjóra, Sigurgeir Sigmundsson, vísar því á bug að nokkuð óvenjulegt hafi verið við afgreiðslu málsins. Dyflinnar-úrskurðir séu alltaf birtir daginn áður en þeir eru framkvæmdir, enda fresti kæra ekki flutningi, samkvæmt lögum. Þessi háttur hafi verið hafður á til margra ára, í samstarfi við RKÍ.
Ástæða þess að lögmanni Pauls var ekki gert viðvart hafi verið sú að Paul mætti ekki til birtingar upprunalegrar ákvörðunar, 5. maí. Þá stóð til að senda hann til Ítalíu daginn eftir, 6. maí. Því var frestað eftir beiðni frá RKÍ.
„En hann mætti ekki og óskaði því ekki eftir lögmanni. Þá köllum við ekki á lögmann," segir Sigurgeir.
Flestir útlendingar láti nægja að styðjast við RKÍ og mikið hafi verið gert til að koma til móts við Paul. Hann hafi til að mynda fengið að fara heim um kvöldið og haft gesti hjá sér.
„Við höfum heimildir til að hafa útlendinga mun lengur í haldi og þannig er þetta gert í nágrannalöndunum. Hér þykir mjög mannúðlega að staðið. En það er algjört lágmark [að hneppa menn í varðhald] daginn áður," segir hann.
Annars bar til tíðinda í gær að punktar Jóns Magnússonar, þingmanns Frjálslyndra, af fundi allsherjarnefndar um Paul Ramses, rötuðu á netið í gær. Jón kveður þetta ekki með vilja gert. „Ég er öskureiður," segir hann. Punktarnir hafi farið á netið fyrir mistök starfsmanns.klemens@frettabladid.is
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080710/FRETTIR01/511214905)
09. júlí 2008
Katrín Theodórsdóttir, lögmaður Paul Ramses, Keníamannsins sem Útlendingastofnun vísaði úr landi í síðustu viku, lagði fram kæru til dómsmálaráðuneytisins vegna brottvísunarinnar nú á fjórða tímanum. Hún vonar að ráðherra muni láta málið sæta forgangi, enda þoli það enga bið.
„Nú er þetta í fyrsta skipti komið á borð dómsmálaráðherra. Þannig að hann hefur tækifæri til að fjalla um þetta, og þá vonum við að það taki sem stystan tíma,“ segir Katrín.
Katrín segir að Paul Ramses vera í biðstöðu í Róm þar sem hann dvelur á gistiheimili fyrir hælisleitendur. „Hann er óttasleginn og passlega bjartsýnn,“ segir Katrín.
Katrín segist vilja sjá að kæran verði tekin til meðferðar þegar í stað. Hún gerir þá kröfu að ákvörðunin verði ógild vegna form- og efnisannmarka sem á henni séu.
Ef ekki verður orðið við þeirri kröfu er farið fram á að Björn Bjarnason dómsmálaráðherra breyti ákvörðun Útlendingastofnunar og mæli fyrir að umsókn Ramses verði tekin fyrir á Íslandi. Auk þess að honum verði veitt hér hæli sem pólitískur flóttamaður, eða fái dvalarleyfi af mannúðarástæðum.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/09/kaeru_skilad_til_domsmalaradherra/)