07. júlí 2008
Enn róstursamt í Kenía og öryggi borgara alls ekki tryggt. Íslendingum til skammar að láta Ítalíu taka ábyrgð á Paul Ramses.
Vinir Kenía sem hafa mótmælt atferli íslenskra yfirvalda þegar þau vísuðu Paul Ramses úr landi í síðustu viku hafa sent frá sér yfirlýsingu. Í henni kemur fram að þótt ástandið hafi vissulega lagast í Kenía á undanförnum vikum og mánuðum sé ennþá mikil spenna til staðar.
Samtökin segja að fFriðurinn sem kominn sé á sé í besta falli brothættur friður - þær tvær fylkingar sem eiga að deila völdum séu ósammála um nánast allt og ómögulegt að segja um hvort samkomulagið muni halda.
Þá hafi borist fréttir á allra síðustu vikum og mánuðum um fólk sem hafi verið myrt þegar það sneri aftur til heimila sinna, eftir að róstum átti að vera lokið.
Í yfirlýsingunni segir að þegar tekið sé tillit til tengsla Pauls Ramses við Ísland telji þaur étt að allur vafi sem leikur á um öryggi hans skuli falla honum í hag. Við Íslendingar hafi mikið frelsi til að túlka þau lög og þær heimildir sem eru til staðar og sem ein best setta þjóð í heimi ættum að hafa mannúð að leiðarljósi í þessu, sem og öðrum sambærilegum málum.
Að lokum segir í yfirlýsingunni að það sé okkur Íslendingum til skammar að senda úr landi einstaklinga í stöðu Pauls og láta aðrar þjóðir, í þessu tilfelli Ítalíu, taka ábyrgðina. Það er ekkert annað en hugleysi og skortur á samábyrgð á vettvangi alþjóðamála.
Vinir Kenía skora á íslensk stjórnvöld að færa Paul aftur heim til Íslands og veita honum og fjölskyldu hans landvist.
Heimasíða samtakanna Vina Kenía
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/07/yfirlysing_fra_vinum_kenia/)
07. júlí 2008
Ágúst Ólafur Ágústsson varaformaður Samfylkingarinnar vill aðdómsmálaráðherra endurskoði ákvörðun Útlendingastofnunar um að vísaKeníumanninum Paul Ramses úr landi. Allsherjarnefnd Alþingis fundar ummálið á morgun að beiðni Vinstri grænna. Það er RÚV sem greinir frá þessu.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utanríkisráðherra hefur faliðsendifulltrúa íslands á Ítalíu að tala máli Ramses og tryggja að hannfái réttláta málsmeðferð þar.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/07/vill_ad_domsmalaradherra_endurskodi_akvordun/)
07. júlí 2008
"I´m so happy!" sagði eiginkona Paul Ramses vegna frétta af lögsókn Katrínar Theódórsdóttur lögfræðings vegna brottvísunar Paul eiginmanns hennar frá Íslandi. Hún segir þau hjónin ennþá geta hlegið.
Ekki næst í Paul Ramses sem var fluttur til Ítalíu í óþökk meirihluta íslensku þjóðarinnar. Meðan hann bíður lausnar sinnar málar berjast Íslendingar á mörgum vígstöðvum fyrir því að ákvörðun Útlendingastofnunar verði dregin til baka.
Nú í kvöld lýsti Katrín Theodórsdóttir, lögfræðingur Paul Ramses, því yfir að hún hyggðist kæra ríkið. Hún krefst þess að málið verði ómerkt og tekið upp að nýju.
,,Ég er svo glöð að heyra þetta," sagði Rosemary Atieno í samtali við Vísi. ,,Ég vona að allt blessið. Það er gott að vita að allir eru að berjast fyrir okkur í þessu máli."
Rosemary sagðist hafa heyrt í Paul Ramses í dag. Hann ætti í vandræðum á Ítalíu því mikilvægir pappírar sem hann vantaði væru á Íslandi. Spurð hvernig sambandið væri þeirra á milli; hvort þau gætu enn hlegið eða brosað þegar þau ræddu sín á milli á þessum erfiðum tímum sagði Rosemary:
,,Þegar ég segi honum hvernig íslenska þjóðin stendur á bak við okkur þá verður hann mjög glaður, við hlæjum og grátum í sama símtalinu því meðan fólk berst hér heima er enn þá von."
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080707/FRETTIR01/328768112)
07. júlí 2008
Katrín Theodórsdóttir, lögfræðingur Paul Ramses, hyggst skila inn kæru til dómsmálaráðuneytisins í fyrramálið vegna meðferðarinnar á Paul Ramses.
"Já, þetta verður kært. Ég mun skila inn kærunni til dómsmálaráðuneytisins í fyrramálið. Þá er málið komið til háttvirts Björns Bjarnasonar og fær meðferð þar."
Katrín segist kæra ákvörðun dómsmálaráðherra að vísa Paul Ramses úr landi á þeim forsendum að þar hafi verið brotin lög.
"...bæði íslensk lög og mannúðarlög. Þetta brýtur í bága við stjórnsýslulög, barnalög, lög um mannréttindarsáttmála og ýmislegt annað," segir Katrín.
Mál Paul Ramses heldur áfram að vekja upp umtal og reiði. Fyrr í dag hvatti Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar, Björn Bjarnason til að endurskoða ákvörðun sína í Ramses málinu. Ágúst er einnig varaformaður Allsherjarnefndar sem fundar um málið á morgun.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080707/FRETTIR01/762596431)
07. júlí 2008
Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista á Íslandi, skorar á stjórnvöld að snúa Keníamanninum Paul Ramses aftur til Íslands. Dane segist skammast sín í fyrsta skipti fyrir að vera íslendingur og neitar að hafa blóð manns á höndum sér.
Þetta kemur fram í bréfi sem hann sendi Vísi nú í morgun. Þar segir ennfremur:
„Mér finnst meðferðin á Paul Ramses og fjölskyldu hans alveg hrikaleg og ég skil ekki hvernig það fólk sem stendur á bak við þessar ákvarðanir í máli þeirra getur lifað með sjálfu sér og sofið á nóttunni.
Þetta virðist vera fullkomið tækifæri fyrir íslensk stjórnvöld að snúa við blaði í málefnum hælisleitenda og sýna umburðarlyndi í verki. Í stað þess er kveðinn dauðadómur yfir manni með því að senda hann úr landi og skilja fjölskyldu hans eftir í óvissu. Ég sem íslendingur skammast mín nú í fyrsta sinn yfir þessum atburði og neita að hafa blóð manns á höndum mér.
Ég kynntist Paul lítillega fyrir skömmu og sá ekki betur en þar væri á ferð heiðarlegur rólyndismaður sem aðeins vill gera það besta sem hann getur fyrir fjölskyldu sína. Þau hjónin eiga nú son sem fæddur er á Íslandi og vilja eins og aðrir foreldrar skapa honum viðunandi lífsskilyrði.
Við höfum heyrt um þetta ákvæði í Dyflinarsamningnum sem íslensk stjórnvöld hafa nú kosið að nýta sér til að forðast að taka mál Ramses fjölskyldunnar til umfjöllunar. Okkar krafa er hinsvegar sú að íslensk stjórnvöld sjái að sér og nýti sér frekar þá heimild sem þau hafa til að taka málið til umfjöllunar hér á landi í stað þess að vísa því frá sér.
Sú ákvörðun að vísa Paul úr landi mun mjög líklega verða hans dauðadómur en enn er ekki um seinann að snúa málinu til betri vegar. Við íslenskir skattgreiðendur höfum enn tækifæri til að beita þrýstingi og leggja fram kröfu um að mál Paul Ramses verði tekið til umfjöllunar og að Ísland taki upp breytta stefnu í þessum málum.
Ég bendi á undirskriftalista sem í gangi eru á netinu og einnig á regluleg mótmæli sem munu vera kl. 12 á hádegi daglega út vikuna fyrir utan Dóms- og kirkjumálaráðuneytið. Ég hvet alla sem vilja breyta gangi mála og stuðla að því að Paul Ramses verði sendur aftur heim til fjölskyldu sinnar á Íslandi til að mæta og sýna stuðning í verki. Ég vil einnig skora á íslensk stjórnvöld að endurskoða ákvörðun sína og snúa Paul aftur til Íslands."
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080707/FRETTIR01/798019636&SearchID=73323069439514)