Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Ramses kominn á gistiheimili í Róm

05. júlí 2008

mynd

Keníamaðurinn Paul Ramses sem sendur var úr landi til Ítalíu í fyrradag hefur nú verið fluttur á gistiheimili fyrir flóttamenn í borginni Róm.

Að sögn Athieno Othiembo eiginkonu hans sem stödd er hér á landi verður hann þar næstu þrjár vikur og á hann að mæta til lögreglu eftir helgi.

Hann vonast til að mál sitt verði tekið fyrir næstu daga. Ekki er enn vitað hvort eiginkonu hans og nýfæddum syni, Fídel Smára, verði gert að fara frá Íslandi en hún er með dvalarleyfi í Svíþjóð og er því ólögleg í landinu.

 



Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080705/FRETTIR01/310322617)

Paul Ramses farinn af flugvellinum

04. júlí 2008

Atieno með Fidel, mánaðargamlan son hennar og Pauls

 

Búið er að flytja Paul Ramses frá flugvellinumað nokkurs konar búðum þar sem fleiri í svipaðri aðstöðu og hann búa. Ítalskalögreglan virtist hissa þegar íslensku gæslumennirnir afhentu hann þarlendumyfirvöldum á flugvellinum.

 

Paul Ramses, sem kemur frá Kenía,var fylgt af lögreglu til London og þaðan  tilÍtalíu. Ramses flúði upphaflega frá Naíróbí í Kenýa en þar sætti hann ofsóknum. Hann sótti hér um landvistarleyfi en var synjað. Kona Ramses, Rosemary Atieno Athiembo, og mánaðargamall sonureru enn hér á landi.

 

Rosemary Atieno Athiembo, eiginkona Pauls,heyrði í manni sínum um kvöldmatarleytið í kvöld. Sagði hann henni að íslenskugæslumennirnir hefðu afhent sig ítölsku lögreglunni á flugvellinum í gær. Hann sagðihenni enn fremur að ítalska lögreglan hefði virst mjög hissa á að verið væri aðkoma með hann til landsins.

 

Paul sagði að búið væri að flytja hann fráflugvellinum að byggingu þar sem fyrir væru aðrir flóttamenn í svipaðri stöðuog hann sjálfur. Honum hafði þá verið tjáð að þarna myndi hann vera næstu þrjárvikurnar. Hann hafði enga hugmynd um hvenær mál hans myndi verða tekið fyrireða hvert hann færi eftir að þessar þrjár vikur væru liðnar.

 

Rosemary sagði að hljóðið í manni sínum hefðiverið betra en þegar hún talaði við hann síðast og að hann hefði ekki gefið uppvonina um að fá að koma til hennar aftur á Íslandi.

 

Paul gaf Rosemary upp númer þar sem hún gæti náðí hann en það hefur hún ekki gert þrátt fyrir að hafa hringt ítrekað í kvöld.

 

Rosemary sagðist vera mjög þakklát og hrærðyfir þeim stuðningi sem hún fyndi fyrir frá Íslendingum. Kona ein hefði sent sértuttugu þúsund krónur eftir að hafa lesið um aðstæður sínar og einnig hefði húnfengið peninga frá Rauða krossinum. Sér hefði líka verið sagt að hann myndiveita henni frekari aðstoð.

 

„Þakka ykkur öllum kærlega fyrir. Ég kannvirkilega að meta þennan hlýhug og stuðning,“ sagði Rosemary að lokum.

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/04/ramses_farinn_af_flugvellinum/)

Mótmæli skipulögð fyrir utan dómsmálaráðuneytið í dag.

04. júlí 2008

Skipulögð hafa verið mótmæli fyrir utan dómsmálaráðuneytið á hádegi á morgun þar sem skorað er á  Björn Bjarnason, dómsmálaráðherra og Hauk Guðmundsson að snúa Paul Ramses heim og fjalla um mál hans hérlendis þar sem fjölskylda hans er. Þetta kemur fram í tilkynningu sem send hefur verið á fjölmiðla.

„Síðastliðinn desember tók Paul þátt í borgarstjórnarkosningum í Naíróbí, en flokkur hans náði ekki kosningu. Eftir kosningarnar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum. Vegna ótta um líf sitt kom Paul hingað til lands í janúar og sótti um pólitískt hæli. Honum barst aldrei svar við beiðni sinni, jafnvel þó Katrín Theodórsdóttir héraðsdómslögmaður hafi í mars ítrekað beiðni um að mál Pauls væri tekið upp.

Í gær komu lögregluþjónar fyrirvaralaust á heimi Pauls og handtóku hann fyrir framan konu hans og þriggja vikna son þeirra. Hann var færður á lögreglustöðina á Hverfisgötu þar sem hann eyddi nóttinni. Í morgun var hann svo sendur til Ítalíu og mál hans sett í hendur stjórnvalda þar í landi, en samkvæmt Dyflinnarsamningnum hafa íslensk stjórnvöld leyfi til þess að senda hann til Ítalíu, vegna þess að Paul millilenti þar á leið sinni til Íslands," að því er segir í tilkynningu.



http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/07/03/motmaeli_skipulogd_fyrir_utan_domsmalaraduneytid/

Mótmælinn er á milli kl 12 og 13 í dag.

http://birgitta.blog.is/blog/birgitta/

Stjórnvöld vísa flóttamanno úr landi.

04. júlí 2008

Paul Ramses

 

Stjórnvöld hafa ákveðið að vísa flóttamanni frá Kenía úr landi án þess að taka fyrir umsókn hans um pólitískt hæli. Maðurinn starfaði um tíma við hjálparstarf Í Kenía sem íslensk stjórnvöld komu að.

Einn þeirra sem tók þátt í borgarstjórnarkosningum í Naíróbí í Kenía í desember í fyrra er Paul Ramses. Hann náði ekki kosningu heldur andstæðingur hans í stjórnarflokki landsins. Eftir kosningar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum, Paul óttaðist um líf sitt og flúði því land í janúar síðastliðinn. Hann kom til Íslands og sótti um hæli sem pólitískur flóttamaður. Ástæðan er að hann dvaldi hér um tíma árið 2005 og starfaði í framhaldi fyrir ABC barnahjálp í Kenía.

Paul tók þátt í að stofna skóla í Naíróbí með Íslendingum, en það verkefni er meðal annars stutt af utanríkisráðuneytinu. Í mars var farið fram á að stjórnvöld tækju málið fyrir. Fram að þessu hefur ekkert svar borist.

Katrín Theódórsdóttir héraðsdómslögmaður segir að dag hafi lögreglan komið inn á heimili Pauls og tekið hann í fangelsi. Þar eigi hann að sitja í nótt og svo verði hann sendur út í fyrramálið.
Ástæðan er að Paul millilenti á Ítalíu á leið sinni til landsins, og stjórnvöldum er því heimilt að senda hann þangað og láta ítölsk stjórnvöld fjalla um málið.

Katrín segir að Paul eigi konu og 3 vikna son sem séu hér á landi líka og með þessari ákvörðun verði fjölskyldunni stíað í sundur.

 

http://www.ruv.is/heim/frettir/frett/store64/item215735/

 

Afherju er forstöðumaður Útlendingarstofnunar ekki handteking og yfirheyrður?

04. júlí 2008

Keníumaðurinn Paul Ramses, sem íslensk stjórnvöld vísuðu úr landi án þess að taka fyrir mál hans, var fluttur úr landi í morgun með lögregluvaldi.  

Hann starfaði um tíma við hjálparstarf Í Kenía sem íslensk stjórnvöld komu að. Ramses tók einnig þátt í borgarstjórnarkosningum í Næróbí í Kenía í desember í fyrra en náði ekki kosningu heldur andstæðingur hans í stjórnarflokki landsins. Eftir kosningarnar urðu margir stjórnarandstæðingar fyrir ofsóknum, Paul óttaðist því um líf sitt og flúði land í janúar síðastliðinn. Kom hann til Íslands og sótti um hæli sem pólitískur flóttamaður af því að hann dvaldi hér um tíma árið 2005 og starfaði eftir það fyrir ABC barnahjálp í Kenía. Paul tók þátt í að stofna skóla í Næróbí með Íslendingum og var það meðal annars stutt af utanríkisráðuneytinu.

Á leið sinni hingað millilenti Paul á Ítalíu. Ákvæði í Dyflinarsamningnum gefur íslenskum stjórnvöldum heimild - en gerir þeim ekki skylt - til að vísa flóttamanni aftur til þess lands sem fyrst veitir vegabréfsáritun og ber því landi, sem sagt Ítalíu í þessu tilviki ef heimildin er notuð, að taka afstöðu um það hvort honum verður veitt pólitískt hæli. Paul á konu og 3 vikna son sem eru hér á landi. Fjölskyldunni hefur því verið stíað í sundur.

Lögmaður Ramses sagði að í gær hafi lögreglan komið inn á heimili Pauls og tekið hann í fangelsi. Þar sat hann í nótt og var svo fluttur út í morgun.  

Sagt er að tveir menn hafi þá farið út á flugbrautina, sem mun vera lögbrot, til að mótmæla nauðungarflutningum á Ramses. Þeir voru handteknir og færðir í fangaklefa til yfirheyrslu. Kristján Eyjólfsson fulltrúi lögreglunnar á Keflavíkurflugvelli lítur á þetta mál alvarlegum augum enda varði athæfið hugsanlega við sex ára fangelsi.

En mig langar mig til spyrja:  Hvers vegna handtekur lögreglan ekki forstöðumann Útlendingastofnunar, þegar í stað og yfirheyrir hann fyrir brot stofnunnarinnar á rétti Paul Ramses?

Hvernig skyldi forstöðumanninum annars líða þegar hann kemur í kvöld heim til fjölskyldu sinnar yfir þeim verknaði sínum að hafa stíað annarri fjölskyldu í sundur og stofnað jafnvel lífi fjölskylduföðurins í hættu?

Bara vel? Í það minnsta mun hannh verja gerðir sínar fram í rauðan dauðann - sanniði til- og stjórvöld munu styðja hann samviskusamlega eða öllu fremur án  nokkurrar samvisku í því með ráðum og dáðum.

Hvaða glæpur var annars framinn í þessari atburðarás og hverjir eru glæpamennirnir sem ættu skilið að verða dæmdir í að minnsta kosti sex ára fangelsi?  



http://nimbus.blog.is/blog/nimbus/entry/583071/#comment-add

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>