Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Eggjum grýtt í hús bloggara

14. maí 2008

Í bloggfærslu á heimasíðu sinni greinir Viðar Helgi Guðjohnsen, formaður Landssambands ungra frjálslyndra, frá því að heimili hans hafi verið grýtt með eggjum aðfaranótt mánudagsins.

Segir Viðar Helgi í færslunni að hópur einstaklinga hafi lagt bifreið sinni á miðri götu fyrir framan lögheimili hans, stigið út og látið eggjum rigna yfir húsið. Viðar segist hafa tilkynnt þetta til lögreglunnar en svo heppilega vildi til að bróðir hans vaknaði við atganginn og náði að taka niður skráninganúmer bifreiðarinnar.

Eins og DV greindi frá í síðasta mánuði var bréfsefni dreift í hverfinu þar sem hann býr og sagt að þar búi rasisti. Viðari sagði í viðtali við DV á sínum tíma að hann taldi víst að átt væri við sig þó hann vissi ekki hver skrifaði bréfið. Samtök sem kalla sig Í-P Action Goup, Chapter Reykjavík skrifuðu undir bréfið. Þar þvertók hann jafnframt fyrir það að vera rasisti.

Viðar hefur átt í útistöðum við Félag anti-rasista á Íslandi undanfarið en hann íhugaði meðal annars að fara í mál við félagið vegna niðrandi skrifa um sig á vefsíðu félagsins þar sem hann er sakaður um kynþáttahatur. Þar var aðkoma hans að tónleikum Bubba Morthens gegn rasisma, þar sem Viðar var gestakynnir, einnig gagnrýnd af formanni félagsins Dane Magnússyni.

Viðar Helgi sem sjálfur lýsir sér sem frjálslyndum þjóðarsinna hefur oft farið mikinn í skrifum sínum bloggsíðu sinni, og hafa þau skrif farið fyrir brjóstið á meðal annars Félagi anti-rasista. Hann segir á heimasíðu sinni að hann velti fyrir sér hvort eggjakastið tengist honum og málaflutningi hans.

Eggjakast og rasistabréfið tengt
Þegar dv.is hafði samband við Viðar Helga nú fyrir stundu sagðist hann ekki hafa heyrt frá lögreglunni í sambandi við eggjamálið. Hann segir að ef botn fáist í málið muni hann íhuga hvort hann kæri. Aðspurður hvort hann teldi að sömu aðilar og sendu bréfið á nágranna hans á dögunum stæðu fyrir eggjakastinu sagði Viðar að hann gæti nú ekki verið viss um það. „Ég veit það nú ekki, en það kæmi mér ekki á óvart.“

Þess ber að geta að Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista, þvertók fyrir að félagið tengdist bréfasendingunum á nokkurn hátt.


Heimild: dv.is (http://www.dv.is/frettir/lesa/8688)

Dagpeningar: Þvingað til að hætta í veikindum

03. maí 2008

Yfirmenn á opinbera markaðnum hafa beitt starfsfólk með langan veikindarétt þrýstingi og gert því að ganga frá starfslokum þegar heilsan hefur bilað eða þegar veikindi hafa staðið í langan tíma. Í fréttablaði Eflingar, sem kom út 1. maí síðastliðinn, er varað við þessari þróun og launafólk hvatt til þess að vera vel á varðbergi.

 

„Það er í raun verið að þvinga fólk til að segja upp. Það hafa komið upp þónokkur slík tilfelli þau tvö ár sem ég hef starfað hér. Starfsmenn hjá ríkinu, Reykjavíkurborg og sjálfeignarstofnunum hafa leitað til okkar. Flest tilfellin tengjast sjálfseignarstofnunum,“ segir Ragnar Ólason, þjónustufulltrúi hjá Eflingu sem jafnframt situr í stjórn sjúkrasjóðs Eflingar.

 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/05/03/thvingad_til_ad_haetta_i_veikindum/)

Gasman og Viðar

28. apríl 2008

Einn maður stóð upp úr í mótmælunum á Norðlingaholti, það er lögreglumaðurinn sem öskraði af lífs og sálarkröftum „gas, gas, gas“ áður en hann sprautaði á hörfandi mannfjöldann. Hefur lögreglumaðurinn hlotið viðurnefnið Gasman í kjölfarið, og er hent að því gaman að hann sé orðinn meðlimur í hljómsveitinni Merzedes Club. Annar skammarverðlaunahafi er Viðar Guðjohnsen, formaður ungra frjálslyndra, sem legið hefur undir ámæli fyrir pólitískt rangar skoðanir á útlendingum. Hann var handtekinn á vettvangi, eins og margir aðrir, en öskraði hið undarlega slagorð „Þeir eru að berja Íslendinga!“




Heimild: dv.is (http://dv.is/skrafadogskrifad/lesa/8076)

Nasistanemendur ekki ávíttir

23. apríl 2008

Útskriftarnemendurnir sem fóru um Smáralind í morgun og komu við á mótmælum vörubílsstjóra nú um tvö leytið eru frá Iðnskólanum í Hafnarfirði. Eins og dv.is greindi frá fyrstur fjölmiðla í morgun fóru nemendurnir um ganga Smáralindar í morgun klæddir Nasistabúningum við mikla athygli viðskiptavina. Um tvö leytið heilsuðu nemendurnir að Nasistasið í beinni útsendingu í Ríkissjónvarpinu, þar sem mótmæli vörubílsstjóra fóru fram.

Jóhannes Einarsson, skólameistari Iðnskólans í Hafnarfirði, segir gjörninginn ekki hafa verið gerðan með vitneskju skólayfirvalda. Þarna sé um að ræða lítinn hóp útskriftarnemenda, en þeir eru við málmiðnaðardeild skólans. Alls munu um hundrað nemendur útskrifast frá Iðnskólanum í Hafnarfirði í vor. „Þegar nemendur eru að dimmitera eru þeir í allskonar búningum. Hver deild hefur sinn búning. Nemendur eru í skólanum fram til hádegis en fara svo út. Þetta er ekkert á vegum skólans,“ segir Jóhannes sem segir búninga nemendanna ekki ætlaða til að meiða einn né neinn.

Jóhannes segir ekkert liggja á bakvið þessar aðgerðir nemendanna annað en að þarna sé ungt fólk að skemmta sér og gera sér glaðan dag. „Hver og einn verður að vera ábyrgur sinna gerða. Það eina sem ég vona er að þeir komi prúðmannalega fram þótt þeir séu að leika sér. Ég get ekki ráðið því hvað þeir gera. Þegar menn sjá svo einhvern atburð sem þennan í sjónvarpinu geta þeir litið á sem svo að það geti verið sniðugt að líta þangað. Þetta er ekkert að undirlagi skólans. Skólinn getur ekki verið með siðgæðisvernd og ræður ekki yfir nemendum þegar er komið út fyrir lóð skólans,“ segir Jóhannes.

Nemendurnir mæta aftur í skólann á mánudag. Ekki er búist við því að þeir verði ávíttir sérstaklega vegna þessa.

Dane Magnússon, formaður Félags anti-rasista, sagði í samtali við dv.is fyrr í dag að honum fyndist nemendurnir hafa gengið of langt í framferði sínu. Hann óskaði jafnframt eftir skýringum á því hvers vegna dimmitering nemendanna hefði verið með þessum hætti. Hann sagði þessar aðgerðir hafa verið meiðandi fyrir marga sem á horfðu.


Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/7897)

Nasistarnir gefi sig fram

23. apríl 2008

„Ég heyrði hávaðann og sá þegar hópurinn var að fara. Ég áttaði mig aftur á móti ekki á því um hvað væri að vera strax. Svo hitti ég félaga minn sem er frá Bretlandi. Hann var í sjokki yfir þessu,“ segir Dane Magnússon, formaður Félags Anti-rasista. Hann var staddur í Smáralind í morgun þegar hópur fólks klætt Nasistabúningum þrammaði um ganga verslunarmiðstöðvarinnar. Er talið að þarna hafi verið um dimmiteringu að ræða.

Eins og dv.is greindi frá fyrr í morgun truflaði hópurinn ekki starfsemi Smáralindar að miklu leyti, en öryggisverðir fylgdust grannt með fólkinu. Ekki er vitað hvaða skóla fólkið er frá.

Dane skorar á þessa einstaklinga að koma fram og svara fyrir um hvers vegna þeir hafi ákveðið að fara þessa leið. Þá skorar hann á viðkomandi skóla að svara fyrir um þetta háttalag nemendanna. „Þetta er alls ekki fyndið og finnst mér of langt gengið í þessu máli. Þarna eiga að vera menntaðir krakkar sem eiga að vita þá sögu sem býr þarna að baki. Ég spyr af hverju þessi leið var farin en ekki einhver önnur,“ segir Dane.

Dane segir ljóst að hópurinn hafi verið að skipuleggja atvikið lengi, en fólkið hafi til að mynda þurft að útvega sér búningana með einhverjum hætti.



Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/7889)

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>