Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Bitin í andlitið fyrir að vera pólsk

05. mars 2008

Hin tvítuga Dominík Majewska lenti í hrottalegri líkamsárás um helgina þegar íslensk stúlka beit hana í andlitið vegna þjóðernis Dominík. Aðeins mánuði áður en ráðist var á hana var hún í viðtali við DV þar sem hún sagðist hafa fellt tár þegar hún frétti af samtökum kynþáttahatara. Nú þorir hún varla út úr húsi.


Viðtal er við Dóminík um atburði liðinnar helgar í DV í dag.


Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/5914)





Fjöldauppsögn í byggingariðnaði

03. mars 2008

Stafnás sagði upp 95 starfsmönnum.Byggingafyrirtækið Stafnás hefur sagt upp 95 starfsmönnum. Samkvæmt kvöldfréttum RÚV er meirihluti þeirra sem sagt hefur verið upp pólskir verkamenn. Þetta mun vera fjölmennasta hópuppsögn hjá einu fyrirtæki í byggingariðnaði til margra ára.

 

Samkvæmt heimasíðu Stafnáss starfa 150 manns hjá fyrirtækinu bæði á Íslandi og í Danmörku.

 

Meðal verkefna Stafnáss er bygging fjölbýlishúss við Vindakór 2-8 í Kópavogi. 

 

Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/03/fjoldauppsogn_i_byggingaridnadi/)

Hugmyndafræði jafnaðarmanna

01. mars 2008

Frá Málþingi Ungra jafnaðarmanna í dag.Um eitthundrað ungir sem aldnir jafnaðarmenn tóku þátt í málþingi á Grand Hótel í Reykjavík sem ungliðahreyfing Samfylkingarinnar stóð fyrir. Þingið bar yfirskriftina Ég er jafnaðarmaður og sagði Eva Bjarnadóttir framkvæmdastjóri Ungra jafnaðarmanna að þingið hefði tekist ákaflega vel.

 

„Það var farið yfir jafnaðarstefnuna og fólk var ánægt með að komast í hugmyndafræðilegt spjall," sagði Eva í samtali við Fréttavef Morgunblaðsins.

 

Málstofur um Evrópumál og Innflytjendamál 

 

Hún sagði að haldnar hefðu verið tvær málstofur, önnur fjallaði um Evrópumálin og hin um innflytjendamálin. „Þar komu fram margar skemmtilega hugmyndir sem verða örugglega nýttar áfram í frekari vinnu og stefnumótum hjá flokknum," sagði Eva.

 

Eva sagði að erindi Aðalsteins Leifssonar lektors í Háskólanum í Reykjavík. „Hann fjallaði um Evrópuhugsjónina og þau gildi um frið og jöfnuð sem Evrópusambandið hvílir á," sagði Eva.

 

Fordómar hafa aukist

 

Í innflytjendamálstofunni ræddi Amal Tamimi um hagnýtar lausnir sem hún hefur séð virka vel í hennar starfi hjá Alþjóðahúsinu.

 

„Dane Magnússon og Laufey Ólafsdóttir sem stofnuðu anti-rasistafélagið í fyrra slógu rækilega í gegn í erindi sínu um fordóma. Dane er sjálfur svartur og hefur reynslu af því hvernig fordómar hafa aukist og vaxið á Íslandi undanfarið," sagði Eva að lokum.


 



Heimild: mbl.is (http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/03/01/hugmyndafraedi_jafnadarmanna/?rss=1)

Fyrsti innflytjandinn í bæjarstjórn Hafnarfjarðar

28. feb 2008

Amal Tamimi, varabæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði, tók sæti í bæjarstjórn á þriðjudaginn síðastliðinn og ku þetta vera í fyrsta sinn sem innflytjandi tekur sæti í bæjarstjórn Hafnafjarðar. Amal er af palestínskum uppruna, en flutti til Íslands árið 1995 og öðlaðist íslenskan ríkisborgararétt 2002.

Árið 2005 flutti hún í Hafnarfjörðinn og skipaði 10. sæti á lista Samfylkingarinnar fyrir sveitastjórnarkosningarnar 2006. Amal hefur gegnt formennsku í lýðræðis- og jafnréttisnefnd Hafnarfjarðar síðastliðið eitt og hálft ár.

Heimild: dv.is (http://dv.is/frettir/lesa/5713)






Hakakrossinn tók á móti ferðalöngum í Leifsstöð

27. feb 2008

mynd

Það voru þreyttir ferðalangar sem komu með flugi Iceland Express frá Kaupmannahöfn um miðnætti í gærkvöldi. Lítilsháttar seinkun hafði verið á fluginu en farþegarnir ráku upp stór augu við lendinguna í Keflavík. Hakakrossinn tók á móti hópnum.

Þegar vélin stöðvaðist litu farþegar út um gluggann og var þá búið að mynda hakakrossinn í snjóinn á flugbrautinni. Einnig stóð stórum stöfum, VELKOMIN, með stóru Ó-i fyrir framan.

Einhverjum farþegum fannst þetta heldur óblíðar móttökur en svo virðist sem nokkrir hressir starfsmenn flugvallarins hafi leiðst biðin eftir vélinni. Það er fyrirtækið IGS sem sér um að þjónusta flugfélögin á Keflavíkurflugvelli.

Vaktsjóri hjá fyrirtækinu kannaðist ekki við málið þegar Vísir náði af henni tali og vísaði á Guðjón Arngrímsson upplýsingafulltrúa Icelandair. Hann sagðist í samtali við Vísi ekkert hafa heyrt af þessum gjörðum.

Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080227/FRETTIR01/80227077)

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>