Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

mbl.is - Unglingum af erlendum uppruna líður verr

14. jan 2008

Ný rannsókn á líðan unglinga af erlendum uppruna sýnir að þeim líður mun verr á Íslandi en unglingum af íslenskum uppruna. Kemur þetta fram í rannsókn á vegum Háskólans á Akureyri sem kynnt var sl. föstudag á málþingi innflytjendaráðs og félags- og tryggingamálaráðuneytisins um framkvæmdaáætlun ríkisstjórnarinnar í málefnum innflytjenda.

Að sögn rannsóknarstjórans, Þórodds Bjarnasonar prófessors í félagsfræði við HA, eru unglingar af erlendum uppruna t.d. þunglyndari og hafa verri sjálfsmynd. „Þau verða einnig fyrir mun meira einelti en aðrir og eru líka mun ólíklegri til að stefna á stúdentspróf,“ bendir hann á. „Það er því ekki að undra að flest þeirra líta ekki á sig sem Íslendinga og ríflega fjórðungur þeirra hyggst flytja af landi brott fyrir fullt og allt þegar þau verða fullorðin.“

11. jan 2008

Segja útlendinga hirða vinnuna

Hluti liðsmanna ÍFÍ stilltu sér upp fyrir myndatöku í gær.

„Pólverjar og Ítalir koma hingað og hirða alla byggingarvinnu frá okkur og fólk kemur og hirðir alla fiskvinnu. Síðan er það svarta fólkið sem vinnur ekki einu sinni, það kemur bara hingað og týnist einhversstaðar á vappinu, þetta er ógeðslegt. Síðan dirfist þetta fólk að ráðast á okkur. Hér segi ég stopp og ekki lengra, nú er komið nóg,“ segir Kamilla Sigtryggsdóttir, einn liðsmanna samstakanna Ísland fyrir Íslendinga í Reykjanesbæ þar sem undanfarið hefur verið mikil ólga milli Íslendinga og útlendinga.

Í DV í dag er rætt við fólk í samtökunum og reynt að varpa ljósi á það hvað veldur vaxandi útlendingahatri í bænum sem náði hámarki þegar fjögurra ára drengur lést eftir að bifreið í eigu Pólverja ók á hann.
Alls eru um 100 manns í Íslandi fyrir Íslendinga í Keflavík en samtökin hafa einnig skotið rótum víðar um land. Ítarlega er fjallað um málið í DV í dag.

Farbann framlengt

08. jan 2008

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í dag farbann yfir Pólverja sem grunaður er um að hafa ekið á 4 ára gamlan dreng á Vesturgötu í Reykjanesbæ í lok nóvember. Mál mannsins er enn í rannsókn hjá lögreglunni á Suðurnesjum sem fór fram á framlenginguna. Maðurinn sem neitar sök er nú í farbanni til 29. janúar.

Allt á huldu um bruna síðustu daga

08. jan 2008

Slökkviliðið hefurf haft í nógu að snúast síðustu daga.


Breki Logason skrifar:



Grunur leikur á að kviknaði hafi í út frá kertum í íbúð við Tungusel í gærnótt. Rannsókn er þó ekki lokið en margt bendir til þess að það hafi kviknað í út frá kertunum.

Í brunanum lést 45 ára karlmaður, Hilmar Ragnarsson, eftir að hafa bjargað konu og tveimur börnum hennar úr brunanum.

Á sunnudaginn kom síðan upp eldur í íbúð við Neshaga í vesturbæ Reykjavíkur. Samkvæmt upplýsingum frá lögreglu er margt sem bendir til þess að kveikt hafi verið í íbúðinni sem var mannlaus. Húsráðendur sem eru útlendingar voru erlendis en kveikt var í sömu íbúð fyrir rúmu ári síðan. Það mál er enn óleyst.

Síðan kom eldur upp í Jórufelli í Breiðholti nú í dag en þar leikur grunur á að kveikt hafi verið í geymslu á neðstu hæð hússins. Lögreglan hafði ekki fengið það mál inn á borð til sín og því er enginn grunaður um þá íkveikju.

Einelti á vinnustað ekki vandamál hjá erlendum ríkisborgurum

07. jan 2008

Ekki virðist halla á erlent vinnuafl á vinnustöðum

Helga Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi Alþjóðahússins segir blessunarlega ekki mikið af málum berast til þeirra í líkingu við mál David Cross sem fjallað er um í DV í dag. David sakar þar fyrrum vinnuveitanda sinn og samstarfsfélaga um kynþáttaníð og einelti en að sögn Helgu hefur dregið úr slíkum málum. „Það berast reglulega fyrirspurnir frá fólki af erlendu bergi brotið sem þykir að á því hafa verið brotið í starfi, oft vegna tungumálaörðuleika, og það leitar því ráðgjafar í sínum málum. En eineltismál og kynþáttaníð sem þetta eru sem betur fer ekki algeng“.

Hjá Vinnueftirliti ríkissins fengust svipaðar upplýsingar, en vinnustaðaeftirlitið þar tekur móti kvörtunum um einelti og annan níð á vinnustöðum og rannsakar þau mál þegar þau koma upp. Gylfi Már Guðjónsson hjá Vinnueftirlitinu sagði svona mál koma upp reglulega, en hann kenndi enga aukningu í þeim málum, og því síður í garð erlends vinnuafls.

Af þessu má álykta að ekki sé mikið um að erlendum starfsmönnum þyki ástæða til að kvarta undan óþægindum af völdum vinnufélaga og yfirmanna. En velta má fyrir sér hvort fólk sé nægjanlega upplýst um möguleikana sem því stendur til boða til að leita réttar síns. Alþjóðahúsið veitir alhliða ráðgjöf til handa erlendum ríkisborgurum, þar sem auðvelt er að nálgast allar upplýsingar og aðstoð.

Sigurður Mikael Jónsson - mikael@dv.is

<< 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 12 13 14 15 16 17 18 19 20 21 22 23 24 25 26 27 28 29 30 31 32 33 34 35 36 37 38 39 40 41 42 43 44 45 46 47 48 49 50 51 52 53 54 55 56 57 58 >>