04. nóv 2008
Í októbermánuði bárust Vinnumálastofnun 64 tilkynningar um hópuppsagnir þar sem sagt var upp samtals um 2.950 manns. Um 46% tilkynninganna voru vegna starfsmanna í mannvirkjagerð. Uppsagnir í fjármálastarfsemi, þar sem uppsagnir Landsbanka, Glitnis og Kaupþings vega þyngst, eru um 20% af tilkynningunum. Tæp 14% uppsagnanna koma úr verslunargeiranum og um 11% úr iðnaði, í flestum tilvikum tengdur mannvirkjagerð. Um 4% uppsagna er í sérfræðistarfsemi og útgáfustarfsemi og tæp 4% uppsagnanna eru úr flutningastarfsemi þar sem póstdreifing vegur þyngst. Loks voru 1% uppsagna úr ýmiskonar þjónustu.
Þetta kemur fram á vef Vinnumálastofnunar. Þar segir einnig:
„Um 93% uppsagnanna eru vegna starfsfólks á höfuðborgarsvæðinu en aðrar uppsagnir dreifast á Suðurnes, Vesturland Norðurland eystra og Suðurland.
Heildarfjöldi starfsmanna þeirra fyrirtækja sem tilkynntu uppsagnir er tæplega 11.000 og því eru þessi fyrirtæki sem um ræðir að segja upp um 28% starfsmanna sinna að jafnaði. Mjög misjafnt er þó milli atvinnugreina hve hátt hlutfallið er. Þannig eru fyrirtæki í mannvirkjagerð að jafnaði að segja upp ríflega 42% sinna starfsmanna og er dreifingin allt frá 15% upp í 100%. Hlutfallið er svipað í flutningastarfsemi eða rúm 40%. Í iðnaði, sérfræðilegri starfsemi og ýmissi þjónustu er hlutfallið nálægt 35%, 20% í verslun og um 16% í fjármálastarfsemi.
Uppsagnirnar koma til framkvæmda allt upp í 6 mánuði. Upplýsingar um hvenær nákvæmlega einstakar uppsagnir koma til framkvæmda eru fremur óljósar, en þó má segja að á tímabilinu 1-3 mánuðir sé algengast, nema í fjármálastarfsemi þar sem um er að ræða tímabil sem nær yfir 3-6 mánuði. Flestar þessara uppsagna koma til framkvæmda um næstu mánaðarmót, og svo um áramót og um mánðarmótin jan./feb. 2009.
Ástæður uppsagna eru nánast alltaf verkefnaskortur, fjárhagserfiðleikar og óvissan framundan. Margir eru því að segja upp til að búa sig undir erfiða stöðu eftir 2-3 mánuði og vonast til að geta endurráðið starfsfólk að einhverju marki áður en til starfsloka þeirra kemur ef verkefnastaða gefur tilefni til.
Alls hefur yfir 4.400 manns verið sagt upp á árinu 2008 með hópuppsögnum. Stærstur hluti uppsagnanna barst í lok október eða um 67%, eða um 2950 manns frá 64 fyrirtækjum. Fram að því höfðu borist frá 0 til 4 tilkynningar í hverjum mánuði."
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20081104/FRETTIR01/978930042)
30. okt 2008
Kynnisferðir, sem meðal annars sjá um rekstur Flugrútunnar, hafa sagt upp 21 starfsmanni, þar af 18 bílstjórum. Ástæðan er sögð hagræðing til að mæta nýju rekstrarumhverfi. Tilkynnt var um uppsagnirnar í dag.
Alls starfa um 70 bílstjórar hjá fyrirtækinu. Hinir þrír sem sagt var upp störfuðu á verkstæði og skrifstofu.
„Við þurfum að hagræða eins og önnur fyrirtæki og þetta er liður í því,“ sagði Einar Steinþórsson, framkvæmdastjóri Kynnisferða, um ástæður uppsagnanna í dag.
Að sögn Einars hefur ekki orðið samdráttur í verkefnum fyrirtækisins. Málið snúist fyrst og fremst um hagræðingu til að mæta auknum fjármagns- og rekstrarkostnaði.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/30/uppsagnir_hja_kynnisferdum/)
30. okt 2008
Á annað hundrað manns missa vinnuna í byggingaiðnaði í Eyjafirði nú um mánaðamótin. Atvinnuleysi í greininni stefnir í 20% að óbreyttu, segir Heimir Krisinsson formaður Félags byggingarmanna.
Menn hafa aldrei séð annað eins ástand og í byggingariðnaði nú. Bæði heimili, vinnustaðir og hið opinbera heldur að sér höndum í framkvæmdum og afleiðingin er uppsagnaholskefla. Í Eyjafirði eru kurl ekki komin til grafar en nú sólarhring fyrir mánaðamót er ljóst að á annað hundrað störf hafa tapast.
Þetta jafngildir því að um 10% byggingamanna í Eyjafirði séu að missa vinnuna og stefnir í allt að 20% atvinnuleysi í þeirra röðum að mati Helga og bætir við að allt sé frosið.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20081030/FRETTIR01/360229937/-1)
30. okt 2008
Nóatún hyggst segja upp allt að hundrað starfsmönnum um mánaðarmótin. Erfið rekstrarskilyrði, og slæm staða í íslensku efnahagslífi, er helsta ástæða uppsagna og hagræðingaraðgerða.
Bjarni Friðrik Jóhannesson, rekstrarstjóri Nóatún, segir enga aðra kosti hafa verið í stöðunni en að grípa til hagræðingaraðgerða. Tveimur verslunum Nóatún, í Hafnfirði og Rofabæ, verður breytt í Krónuverslanir.
Bjarni segir að um hundrað manns hafi verið sagt upp í það heila. „Það er mikið af starfsfólki okkar í hlutastörfum en vitaskuld er einnig um heil störf að ræða. Við ætlum að laga verslanir okkar að breyttum markaðsaðstæðum og hyggjumst lækka vöruverð og koma til móts við okkar viðskiptavini. Eftir sem áður verða sex Nóatún-verslanir í fullum rekstri. Afgreiðslutími verður styttur og vörusamsetningu breytt að einhverju leyti, í takt við þarfir markaðarins.“
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/30/noatun_segir_upp_og_hagraedir/)
29. okt 2008
Tvö fyrirtæki í byggingaiðnaði á Selfossi hafa ákveðið að segja öllu sínu starfsfólki upp störfum. Þá verður starfsfólki stórrar verslunarkeðju á Selfossi fækkað. Um 50 manns missa vinnuna hjá þessum fyrirtækjum, eftir því sem fram kemur á heimasíðu stéttarfélagsins Bárunnar.
„Það syrtir í álinn fyrir margt Sunnlenskt verkafólk þessa dagana og framundan eru svört mánaðamót. Samkvæmt heimildum félagsins var þessi ákvörðun fyrirtækjanna tekin í gær eftir að Seðlabankinn ákvað að hækka stýrivexti úr 12% í 18% og með því skorið á líflínu heimilanna og verkafólks sem þurfa nú mörg hver að berjast, bæði við atvinnuleysi og gríðarlega lánabyrði,“ segir á heimasíðu Bárunnar.
Þá segir að mörg önnur fyrirtæki á félagssvæðinu hafi tilkynnt félaginu um fækkun starfsfólks, þó þar sé ekki um hópuppsagnir að ræða.
Flestir þeirra félagsmanna sem nú lenda í uppsögnum hafa aðeins áunnið sér eins mánaðar uppsagnafrest og gerir félagið ráð fyrir að allt að 50 manns missi vinnuna um þessi mánaðamót. Sú tala getur auðveldlega hækkað.
Báran telur að ekki verði hægt að una við þessa stöðu í efnahagsmálum og bráðnauðsynlegt að komi til mótvægisaðgerða að hálfu ríkisvaldsins og lánardrottna til að létta byrðar atvinnulífsinns og launafólks sem nú eru um það bil að sigla inn í svartnættið.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/29/50_manns_sagt_upp_a_sudurlandi/)