27. okt 2008
Erlendir brotamenn, svo og hælisleitendur, eru sendir í lögreglufylgd úr landi í viku hverri að sögn Smára Sigurðssonar, aðstoðaryfirlögregluþjóns í alþjóðadeild ríkislögreglustjóra. Á föstudag voru til að mynda fjórir menn, tveir Albanar og tveir Litháar, fluttir utan eftir úrskurð um að þeim skyldi vísað úr landi. Fyrr í vikunni var hælisleitandi frá Srí Lanka fluttur úr landi. Alls hafa fimmtíu manns verið sendir utan það sem af er árinu, þar af þrjátíu brotamenn.
„Þessir flutningar eru eitt af okkar hlutverkum," segir Smári, „og þeir eru nánast stanslausir. Við erum að eins og við höfum þol til og fáum stundum lögreglumenn lánaða annars staðar að til að hjálpa okkur við að flytja brotamenn, og stundum hælisleitendur, úr landi."
Hvað varðar erlendu brotamennina segir Smári um að ræða menn sem séu að losna úr fangelsi. Samkvæmt reglum Fangelsismálastofnunar afpláni þeir helming refsingar og séu þá lausir. Þeim sé vísað úr landi af Útlendingastofnun strax í framhaldi af því og settir í endurkomubann.
„Við flytjum þá og komum þeim, eftir atvikum, annaðhvort heim til sín eða út af Schengen-svæðinu," útskýrir Smári. Spurður um hverjir fari í lögreglufylgd alla leið til síns heima segir Smári þá vera um að ræða menn sem hugsanlega gætu talist hættulegir.
Litháarnir tveir sem fluttir voru utan í gær höfðu til dæmis staðið í innbrotum og þjófnuðum og voru dæmdir vegna þess. Lögregla fylgdi þeim til Frankfurt og kom þeim þar um borð í flugvél til Litháens.
Albanarnir hins vegar fóru í lögreglufylgd alla leið til Pristínu að kröfu flugfélaganna. Þeir höfðu setið í gæsluvarðhaldi hér og voru grunaðir um aðild að Frelsisher Kosovó.
„Flugstjóri hefur algjört einræðisvald um borð í flugvél," segir Smári. „Ef hann segist ekki flytja þessa menn án lögreglufylgdar þá verður svo að vera. Flugfélögunum er allaf tilkynnt um þessa flutninga og þau hafa sínar reglur þar um. En þetta sem við erum að gera hér er aðeins lítið brot af öllum þeim flutningum sem fram fara í Evrópu."
Smári segir flutningana mjög mannfreka og því hafi þurft í vaxandi mæli að fá lögreglumenn annars staðar frá til aðstoðar við flutningana.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20081027/FRETTIR01/130249379/-1)
26. okt 2008
Búist er við því að mörg hundruð starfsmenn í byggingariðnaði fái uppsagnarbréf á næstu dögum. RÚV greindi frá því að von væri á stórri hópuppsögn eftir helgi þar sem allt að 230 verður sagt upp hjá einu og sama byggingafyrirtækinu.
Finnbjörn Hermannsson, formaður Samiðnar, sagðist í samtali við RÚV, búast við því að þrjú til fjögur hundruð iðnaðarmenn fái uppsagnarbréf eftir helgi. Hann sagðist hafa verið í sambandi við mörg fyrirtæki að undanförnu og ljóst að erfiður mánuður sé framundan. Fyrirtæki séu að stöðva verkefni og því þurfi að segja upp fólki. Finnbjörn segir nokkuð um að íslenskir iðnaðarmenn spyrji um vinnu á Norðurlöndunum.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/26/hopuppsagnir_i_byggingaridnadi/)
21. okt 2008
Alls eru 3.716 einstaklingar skráðir á atvinnuleysisskrá í dag. Þar af eru 1.990 karlmenn og 1.726 konur, samkvæmt vef Vinnumálastofnunar. Atvinnuleysið í septembermánuði var 1,3% og jókst úr 1,2% í ágúst. Að meðaltali voru 2.229 manns atvinnulausir í septembermánuði.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/21/rumlega_3_700_a_atvinnuleysisskra/)
18. okt 2008
„Maður verður talsvert var við fordóma hjá unglingunum og þeir beinast fyrst og fremst gegn útlendingum, aðallega Pólverjum,“ segir Hafsteinn Vilhelmsson, starfsmaður í félagsmiðstöðinni Miðbergi í Breiðholti. „Mér fannst þetta talsvert vandamál í fyrra og hittifyrra en það er eins og þetta sé aðeins að lagast núna. Kannski vegna þess að krakkarnir eru byrjaðir að venjast því að hér sé fjölmennur hópur Pólverja.“
Hafsteinn segir jafnframt að ungmenni, eins og eldra fólk raunar líka, hafi tilhneigingu til að alhæfa.
Viðmælendur Morgunblaðsins eru sammála um að fordómar beinist einkum gegn útlendingum á Íslandi en samkynhneigðir verði ekki varir við þá í ríkum mæli og kvenfyrirlitning virðist á undanhaldi.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/18/fordomar_bitna_a_utlendingum/)
17. okt 2008
Miklir óvissutímar eru framundan í byggingariðnaði og erfitt að segja til um hvað framtíðin ber í skauti sér. Loftur Árnason, framkvæmdastjóri ÍSTAK, segir ljóst að mikið samdráttarskeið sé framundan. Á þriðja hundrað starfsmenn hætta störfum hjá ÍSTAK um næstu mánaðarmót.
Loftur segir að líklegt að mikil stöðnun verði í byggingariðnaði næstu árin ef ekki komi til opinberar stórframkvæmdir. „Staðan er sú að það verður mjög mikið atvinnuleysi í byggingariðnaði ef ekki koma til mannaflafrekar framkvæmdir.“
Loftur segir orðið ljóst að mikið umfram framboð sé á fasteignamarkaði, einkum á höfuðborgarsvæðinu, og í þeirri stöðu sé ekki ráðlegt að byggja íbúðarhúsnæði til sölu.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/17/a_thridja_hundrad_ad_haetta/)