02. okt 2008
Alls hefur verið sagt upp um 1.460 manns á árinu 2008 með hópuppsögnum. Í septembermánuði bárust Vinnumálastofnun fjórar tilkynningar um hópuppsagnir. Allt voru það tilkynningar frá fyrirtækjum í byggingariðnaði, starfandi á höfuðborgarsvæðinu.
Alls var tilkynnt um uppsagnir á 113 starfsmönnum en heildarfjöldistarfsmanna þessara fyrirtækja er um 430 og er því um fjórðungistarfsmanna sagt upp að jafnaði, að því er fram kemur á vef Vinnumálastofnunar.
Uppsagnirnar koma til framkvæmda á fimm mánaða tímabili, en fyrstuuppsagnirnar koma til framkvæmda í lok októbermánaðar en þær síðustu ílok febrúar 2009. Flestar uppsagnirnar koma þó til framkvæmda fyrirárslok 2008.
Í hverjum mánuði það sem af er ári hafa borist allt að fjórar tilkynningar um hópuppsagnir,engin í mars en mest 4 í maí og september. Fjöldi þeirra sem sagt erupp er hins vegar mjög mismunandi, í flestum tilvikum eru fyrirtæki aðsegja upp fáum tugum starfsmanna en í einstaka tilvikum hafa uppsagnireinstakra fyrirtækja verið nálægt 100 eða jafnvel nokkur hundruð.
Sveiflurnar eru því miklar milli mánaða en á heildina litið fjölgarþeim sem sagt er upp með hópuppsögnum eftir því sem líður á árið.Flestum starfmönnum var sagt upp í ágúst, en einnig var fjöldieinstaklinga mikill í maí og júní.
Nú síðustu mánuði hefur mest verið um hópuppsagnir í byggingariðnaðiog er yfir 40% uppsagna á árinu 2008 í byggingariðnaði. Um 20% er íflugrekstri, milli 15 og 20% í ýmis konar þjónustustarfsemi, svipaðhlutfall í verslunarstarfsemi og 6% í sjávarútvegi.
Nálægt 60% uppsagnanna ná til fólks sem búsett er áhöfuðborgarsvæðinu, tæp 20% á Suðurnesjum og rúm 20% annars staðar álandinu.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/02/taeplega_1_500_sagt_upp_i_hopuppsognum_i_ar/)
01. okt 2008
ÞG Verktakar ehf. segist neyðast vegna verkefnastöðu og erfiðra rekstrarskilyrða, að grípa til hópuppsagna. Um mánaðamótin tóku þannig gildi uppsagnir 31 starfsmanns.
Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir:
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/01/thg_verktakar_segja_upp_31_starfsmanni/)
01. okt 2008
Byggingafyrirtækið Eykt sagði upp 15 manns nú um mánaðamótin, að sögn Páls Daníels Sigurðssonar, sviðsstjóra framkvæmdasviðs. Um er að ræða verkamenn og trésmiði. Flestir eru erlendir. Segir Páll að uppsagnirnar séu aðhaldsaðgerðir vegna verkefnasamdráttar.
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/10/01/eykt_segir_upp_15_manns/)
27. sept 2008
Allt bendir til þess að atvinnuleysi muni aukast hratt á næstu mánuðum. Þrjú fyrirtæki tilkynntu um fjöldauppsagnir í gær
Icelandic Ground Service á Keflavíkurflugvelli ætlar að segja upp 20 starfsmönnum um næstu mánaðamót. Fram kom í fréttum stöðvar tvö í gær að ástæða uppsagnarinnar sé verkefnaskortur. Þá tilkynnti Vodafone ennfremur um uppsagnir tuttugu starfsmanna í gær og ÞG verktakar ætla að segja upp tugum manna um næstu mánaðamót.
Hátt í þúsund manns hafa misst vinnuna í hópuuppsögnum í sumar og vel á annað þúsund manns í byggingariðnaði hafa misst vinnuna á árinu. Vænta má að þessar uppsagnir fari að gæta í atvinnuleysistölum um næstu mánaðamót.
Þó atvinnuleysi hafi aðeins aukist lítillega á undanförnum mánuðum bendir allt til þess að ástandi eigi eftir versna á næstunni. Atvinnuleysi var 1,2 prósent í síðasta mánuði sem jafngildir því að tvö þúsund og eitt hundrað manns hafi að meðaltali verið á atvinnuleysisskrá í mánuðinum.
Vinnumálastofnun spáir því að atvinnuleysi verði 1,2 til 1,5 prósent í september.
Alþýðusamband Íslands gerir ráð fyrir því að atvinnuleysi muni aukast hratt í vetur og þá spáir greiningardeild Landsbankans því að atvinnuleysi nái hámarki í ársbyrjun 2011 og verði þá 4 prósent.
Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20080927/FRETTIR01/253816687/-1)
22. sept 2008
Ríflega þriðjungur svarenda á aldrinum 18 til 35 ára í könnun sem Félagsvísindastofnun vann fyrir ASÍ telur eðlilegt að Íslendingar njóti betri kjara á vinnumarkaði en fólk af erlendum uppruna. Þessi niðurstaða stingur í stúf við önnur svör sem leiddu m.a. í ljós að langflestir töldu að ASÍ ætti að leggja áherslu á launa-, jafnréttis- og mannréttindamál í starfi sínu.
„Þetta er verulegt áhyggjuefni,“ segir Halldór Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóri ASÍ, um afstöðu fjölda svarenda til launakjara erlendra starfsmanna. „Það skiptir mjög miklu máli að missa ekki dampinn í umræðunni um „Einn rétt og ekkert svindl“ sem var yfirskrift hennar á sínum tíma. Þessi viðhorf gefa fullt tilefni til að velta því fyrir sér hvað þetta unga fólk er að hugsa.“
Heimild: mbl.is (http://mbl.is/mm/frettir/innlent/2008/09/22/telja_edlilegt_ad_utlendingar_seu_med_lakari_laun/)