Félag Anti-Rasista

» Fara á forsíðu

Þrír í hungurverkfalli

07. nóv 2008

mynd

Þrír hælisleitendur hafa verið í hungurverkfalli frá því klukkan sex á þriðjudagsmorgun. Þeir krefjast þess að þeir, og aðrir hælisleitendur, fái hraða úrlausn sinna mála og verði veitt dvalarleyfi.

„Útlendingastofnun getur ekki skipt sér af því hvort menn borða eða ekki," segir Haukur Guðmundsson, settur forstjóri Útlendingastofnunar. Mál allra hælisleitenda séu í ákveðnu ferli sem verði ekki flýtt með þessu móti.

Tveir mannanna, þeir Mehdi og Farzad, eru frá Íran. Majid er frá Alsír. Þeir hafa verið hér á landi í á bilinu tvö og hálft til fjögur og hálft ár. Allir hafa þeir dvalið að Fitjum í Reykjanesbæ en þar er dvalarstaður hælisleitenda hér á landi.

Farzad segir þá félaga eingöngu hafa drukkið örlítið af vatni frá því á þriðjudagsmorgun. „Við þurfum að gera það, til að halda í okkur lífinu. Við vitum að Útlendingastofnun vinnur afar hægt. En við ætlum ekki að borða fyrr en við fáum réttu svörin."

Þetta er í annað sinn sem Farzad fer í hungurverkfall. Það gerði hann einnig í september síðastliðnum eftir að lögreglan lagði hald á fé úr herbergi hans í húsleit að Fitjum.



Heimildir: visir.is (http://visir.is/article/20081107/FRETTIR01/985979603/-1)