18. apríl 2008
Athyglisverð ráðstefna föstudaginn 18. apríl.
Ráðstefna um umfjöllun fjölmiðla um innflytjendur og afbrot verður haldin í Salnum, Kópavogi, föstudaginn 18. apríl 2008 kl. 13.00-17.45. Alþjóðahús, Félags- og tryggingamálaráðuneytið/ Fjölmenningarsetur, lögreglan á höfuðborgarsvæðinu, Blaðamannafélag Íslands og Kópavogsbær standa að ráðstefnunni og er markmiðið að opna umræðuna meðal hlutaðeigandi. Fundarstjóri er Birgir Guðmundsson, lektor í fjölmiðlafræði við Háskólann á Akureyri.
13.00 Setning - Einar Skúlason, framkvæmdastjóri Alþjóðahúss
13.05 Ávarp - Jóhanna Sigurðardóttir, Félags- og tryggingamálaráðherra
13.10 Eru afbrot útlendinga öðruvísi en Íslendinga? - Rannveig Þórisdóttir, deildarstjóri upplýsinga-og áætlanadeildar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
13.30 Afbrot, staðalmyndir og innflytjendur - Helgi Gunnlaugsson, prófessor í félagsfræði við Háskóla Íslands
13.50 Sjónarhorn blaðamannsins - Rúnar Pálmason, blaðamaður hjá Morgunblaðinu
14.10 The media- a tool or an obstacle for integration? (Fjölmiðlar - hjálp eða hindrun í aðlögun innflytjenda?) - Arash Mokhtari, verkefnisstjóri hjá Quick response í Svíþjóð
15.00 Innflytjendur og erlent vinnuafl í fjölmiðlum 2007- Magnús Heimisson, forstöðumaðurFjölmiðlagreininga
15.20 Kaffihlé
15.35 Málstofa I - Umræðan á götunni/bloggið
Árni Matthíasson, verkstjóri mbl.is - Bloggið: Ábyrgðarlaust hjal?
Joanna Dominiczak, kennari og stjórnarmaður Samtaka kvenna af erlendum uppruna - Útlendingar í fjölmiðlum
Málstofustjóri: Þór Jónsson, forstöðumaður almannatengsla í Kópavogi
Málstofa II - Formleg upplýsingagjöf
Gunnar Rúnar Sveinbjörnsson, kynningarfulltrúi lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu - Hvað má lögreglan segja?
Áslaug Skúladóttir, formaður Félags fréttamanna og fréttamaður á Útvarpinu - Skiptir þjóðerni fólks máli í fréttum af afbrotum?
Málstofustjóri: Arna Schram, formaður Blaðamannafélags Íslands
16.15 Kaffihlé
16.25 Samantekt frá málstofum
16.45 Pallborðsumræður
Dane Magnússon, formaður Félags Anti-rasista
Þorbjörn Broddason, prófessor við Háskóla Íslands
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu
Jón Kaldal, ritstjóri Fréttablaðsins
17.15 Ráðstefnuslit - Gunnar Birgisson, bæjarstjóri Kópavogs
17:20 Léttar veitingar